Færsluflokkur: Bloggar
Myndir
17.3.2011 | 15:43
Nokkrar myndir úr daglegu lífi hjá tríóinu
Birkir átti eitthvað slæman dag og steinsofnaði eftir að hafa hlustað á mig söngla í hálftíma
Rétt áður en Birkir skóflaði málningu upp í munn
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Vor í London
13.3.2011 | 16:05
Það er ofboðslega gott að búa í London og ég sé alveg fram á að búa hérna seinna meir en akkurat núna sé ég Ísland í hillingum. Helsta ástæðan er örugglega sú að ég sakna mömmu & pabba ofboðslega mikið og myndi vel þiggja faðmlag frá þeim, ég er nú einu sinni litla stelpan þeirra og má því alveg haga mér þannig þótt ég sé orðin 20+.
Svo væri ég heldur ekkert á móti að geta skroppið í sund, það vantar svolítið hérna í London, sérstaklega fyrir sunnudagana.
Annars er veðrið hérna í London alveg æðislegt og vorið í fullum skrúða. Ég var úti með strákana einn morguninn í vikunni og var eitthvað að pirrast yfir því að þurfa að fara í jakkann minn aftur þegar sólin hvarf á bakvið ský. Ég hætti snarlega að pirra mig yfir því þegar ég las alla snjóstatusana frá Íslandi á facebook seinna um daginn.
Ég fór í Healt MOT í ræktinni minni á mánudaginn en það er svona alsherjar fitness test sem er frítt í boði í ræktinni minni. Hæðin og þyngdin er mæld, hjartsláttur í hvíld, blóðsykurinn, ummál, blóðþrýstingur og svo er maður spurður um hitt og þetta. Þetta er þvílíkt mikil snilld að mínu mati og vantar alveg inn í íslensku ræktirnar. Ég var búin að fara einu sinni áður en var frekar feimin, þannig þegar ég var spurð hvort ég vildi einhverjar ráðleggingar afþakkaði ég bara pent. Í þetta skipti ákvað ég hins vegar að þiggja ráðleggingar þar sem ég hef átt mjög erfitt með að draga mig af stað í rætkina og borðað mjög óhollt upp á síðkastið. Konan sem gerði prófið skrifaði niður hvar ég gæti bætt mig og merkti við tímana sem voru sniðugir fyrir mig, síðan bauð hún mér upp á það að fá tíma með einkaþjálfara svo hann gæti gert prógramm fyrir mig. Ég var voða efins með að fá þennan tíma hjá einkaþjálfaranum af því að ég hélt að það myndi kosta svo mikið en auðvitað var það svo frítt.
Það skemmtilega við þetta allt saman var að ég hef bætt mig töluvert og aukið fitness levelið mitt upp í það að vera frábært eða í sama flokki og 10 % breta í mínu aldursboxi. Þar sem ég hef meira verið styrktaraðili ræktarinnar í janúar og febrúar kom þetta mér töluvert á óvart en síðan þegar ég fór að hugsa betur út í það þá labba ég út um allt og passa tvo tveggja ára ofur fjöruga stráka svo það hlaut að skila sér. Svo fyrir alla þá sem langar að hækka fitness levelið sitt og verða heilsuhraustari, go have babies!
Á þriðjudaginn var síðasta kvöldið mitt í short coursinum og því komið að því að sýna hugmyndirnar okkar. Ég var auðvitað á síðustu stundu að klára verkefnið mitt en náði að klára það 10 mínútum fyrir tímann. Þá hoppaði ég upp í leigubíl og byrjaði að kúpla mig inn í rétta stress andann. Þegar 4 manneskjur áttu eftir að sýna verkefnið sitt og ég þar með talinn, var ég búin að slá inn 911 í símann minn bara svona til öryggis ef hjartað skyldi fara að gefa sig. Nú á meðan ég sagði frá hugmyndinni var ég í hálfgerði móki og gleymdi t.d. að segja frá vörunni minni sem var eiginlega kjarni verkefnisins en sem betur fer spurði kennarinn hvort ég gæti sagt aðeins frá því hvað ég ætlaði að selja.
Stressið var svo mikið hjá mér að það eina sem ég man eftir úr tímanum er að verkefni Líbanon prinsessunnar var frekar súrt en ég bjóst að sjálfsögðu við eitthverri flugeldasýningu og að við myndum allar fá Hermés tösku í lokin. Nei, svo fór ekki og er ég því ekki Hermés töskunni ríkari.
Eftir tíman fór ég, kennarinn og tvær aðrar stelpur á pólskan bar en bæði kennarinn og Magdalena (fyrrum póllandserfinginn) eru frá Póllandi. Ég smakkaði einhvern drykk sem var eins og apple pie á bragðið en lét matinn alveg eiga sig vegna slæmrar reynslu af honum. Julia og Magdalega fengu sér báðar einhverjar pólskar kræsingar og vildu ólmar að ég smakkaði eftir að ég hafði sagt þeim frá mjög slæmri reynslu af innyflasúpu og öðru svipuðu sem ég hafði smakkað af pólskum mat. Þessi matur var mikið skárri en ég held að ég haldi mig bara áfram við mína fæðutegund, nammi.
Ég ákvað í gær að vera svolítið menningarleg og fara og taka bók af British Library sem er hérna rétt hjá mér. Ég rétt steig inn í anddyrið á byggingunni en þar sem þetta er svo stórt og flókið eitthvað og ég sá ekki vott af bókum tók ég u-beyju út og beint inn á Starbucks.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
I Love You & OMG
6.3.2011 | 21:24
Ég ákvað að bæta orðaforða Birkis örlítið og kenndi honum að segja ó my god og I love you. Það tók hann smá tíma að ná tökum á ó my god en ég þurfti bara að segja I love you nokkrum sinnum á meðan bleygjuskipti fóru fram og þá var hann búinn að master I LOVE YOU. Fyrr í vetur var ég eitthvað að reyna að kenna honum að segja Justin Bieber en þar sem Bieberinn verður pottþétt dottinn í mútur þegar Birkir loksins getur gert sér grein fyrir því hver hann er hefur það alveg dottið uppfyrir.
Helgin er búin að vera ansi róleg hjá okkur á King's Cross Road fyrir utan smá uppákomu þegar við náðum að læsa okkur öll úti. Við vorum búin að taka okkur öll til og ætluðum í Regent en þar sem við uppgötvuðum að enginn okkar væri með húslykla þegar við vorum öll komin niður varð Erik að vera eftir og bíða eftir lyklasmiðnum. Ég, Bylgja og Birkir röltum út á róló og kíktum aðeins á kaffihús á meðan við biðum eftir Erik. Það að láta lyklasmiðinn koma og opna íbúðina kostaði góð 95 pund eða 17.836 krónur og 25 aura. Núna munum við öll ganga með lykla um hálsinn og Birkir líka.
Þar sem ég hef átt að vera að vinna verkefnið mitt í dag hef ég náð að áorka öllu öðru sem ég er vön að setja á hakann. Ég fór meðal annars í 90 mínútna yoga tíma, skellti mér síðan á skíðatækið í ræktinni, fór því næst í það langa gufu að ég var lögst útaf og byrjuð að dotta og tók síðan smá göngutúr um Angel. Það að ég fari í ræktina er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi þar sem ég næ alltaf að réttlæta fyrir sjálfri mér eftir daginn að ég sé svo þreytt og jú ég hafi nú hlaupið aðeins með strákunum. Eitthvað varð ég þó að taka mig á í þessum málum þar sem einkaþjálfari úr ræktinni hringdi í mig á fimmtudaginn og spurði hvort ég vildi ekki koma í Health MOT. Ekki gat ég staðist þessa super hressu rödd hinum megin á línunni og lét fallast. Ég er mjög spennt að sjá hvað mun koma út úr þessu MOT þar sem ég er búin að hafa það notalegt uppi í rúmi frá jólum með kók í æð.
Verkefnið í kvöldnámskeiðinu á að vera tilbúið fyrir lokatímann sem er á þriðjudaginn. Ég fékk nána lýsingu af target consumer og átti að koma með einhverja hugmynd til að selja þeim hóp. Target hópurinn minn í grófum dráttum er írönsk kona á aldursbilinu 25 - 35 ára og á sand af seðlum og elskar alla vestræna tísku. Ég ákvað að opna í þykjustunni búð á Regent street með íslenskri hönnun. Hönnuðurirnir sem ég valdi voru STEINUNN, Andersen & Lauth, Kalda, Kron by Kron Kron og Royal Extreme. Íslensk hönnun er í mikilli uppsveiflu og mig fannst alveg ótrúlegt hvað hún er seld víða. Það er til dæmis hægt að kaupa Kron skóna á ASOS og Alexa Chung hefur sést í Andersen & Lauth kjól. Fyrir þá sem ekki vita þá Alexa Chung tísku átrúnaðargoð Breta um þessar mundir en þeir halda varla vatni yfir þessari píu.
Ég prufukeyrði nýju súkkulaði uppskriftabókina mína í gærkvöldi og bakaði Brownie ostaköku með ferskum hindberjum. Hún var ekkert lítið delish og get ég ekki beðið eftir að fá að prófa eitthvað annað úr henni. Ylfa & Jói & Birtingur voru svo frábær að gefa mér hana í afmælisgjöf ásamt súkkulaði og heitir hún Ultimate Chocolate Recipes frá Green & Black súkkulaði meistaranum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Hiksti
22.2.2011 | 16:08
Strákunum finnst ekkert lítið skemmtilegt þegar ég fæ hiksta sem er ágætt því þetta er mjög ódýr skemmtun. Þeir hlægja og hlægja og ýmist biðja um meira eða herma eftir mér hiksta. Ahhhh það er svo einfalt að vera lítill.
Birkir er orðinn svo sáttur með tilvist mína á heimilinu að mér er fagnað þegar ég vakna á morgnanna. Rútínan er svona: Ég vakna, Birkir spjallar við mig, síðan fer ég á klósettið og hann talar við mig í gegnum hurðina á meðan eða kemur með mér, því næst borðar hann með mér morgunmatinn minn.
Hann er orðinn það góður vinur minn að nú vill hann hanga með mér eftir að foreldrar hans eru komnir heim, það gæti reyndar spilað inn í að það er dýna á gólfinu hjá mér sem sumum finnst geðveikt að hoppa á. Ég ætla að trúa því að þetta sé hins vegar útaf því að hann sé búinn að átta sig á því hversu skemmtileg ég er.
Í gær prufuðum við að mála og tókst það rosalega vel hjá Birtingi en hann vill núna bara mála. Hann var mjög pro í þessu öllu saman, skipti reglulega um liti og leyfði listaandanum að koma yfir sig. Birkir var ekki alveg á sama máli en eftir að ég spennti hann í stólinn sinn og rétti honum pensilinn horfði hann bara á mig eins og ég hefði beðið hann um að finna upp hjólið. Hann fékk því bara að fara aftur að leika og þótti það ekkert leiðinlegt þar sem við vorum með gesti. Þórdís og Kristján voru nefnilega í heimsókn og fengu að leika með okkur en það er vetrarfrí í skólanum hans Kristjáns þessa vikuna.
Ég og Þórdís fórum rosa fínt út að borða á föstudagskvöldið á stað sem heitir Dim t. Við vorum ansi grand á því og fengum okkur þriggja rétta og kokteil. Í forrétt var eitthvað sem heitir Dim Sum og er að mínu mati eitthvað sem líkist fylltum koddum og í okkar tilfelli voru þeir fylltir með spicy grænmeti og kjúkling, kasjúhnetum og kóríander.Þetta var alveg gourme grande. Ég og Þórds héldum í fyrstu að við værum orðnar það alheimsvæddar að við þyrftum ekki hnífapör og sögðum við þjóninn að prjónarnir væri nóg, fljótlega fengum við þó bakþanka og báðum um hnífapörin. Held að við verðum að skrá okkur í eitthvað prjóna work shop áður en við förum aftur að afþakka hnífapör.
Annars hef ég það bara mjög fínt í London og vonast eftir sem flestum heimsóknum í sumar frá öllum, það er fínasta hostel og hótel í sömu götu og ég bý :D
XOXO LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Líbanon prinsessan og Póllands erfinginn
1.2.2011 | 23:59
Ég ákvað að undirbúa mig aðeins fyrir tímann í Fashion Marketing í dag og fjárfesti því í Elle blaði ásamt því að glugga í gamlar markaðsfræðiglósur. Lesturinn af Elle nýttist mér mjög vel og gat ég betur skilið skoðanir Líbanon prinsessunnar á öllum þessum hönnuðum og fatamerkjum. Að lesa Elle er ekki leiðinlegur lestur svo núna mun ég bara skoða tískublöð fyrir hvern tíma.
Stelpurnar sem eru með mér í þessum tímum koma víða en eiga þó það sameiginlegt að vera svona þrusu góðar í ensku, nema kannski þessi frá Suður-Kóreu. Þessi frá Suður-Kóreu er samt held ég alveg rosalega góð í ensku, hún er bara með svo mikinn hreim að það verður voðalega erfitt að skilja hana. Ég hef stressast öll upp hingað til þegar ég hef átt að tala og tungan á mér hefur alltaf tvöfaldast á notime. Ég hugsa að ég fari bara að brosa og kinka meira kolli til að sýnast virk í umræðunum. Líbanon prinsessan talar einnig fluently ensku en samt er hún alltaf að afsaka hvað hún sé léleg í ensku og hendir í kjölfarið nokkrum frönskum orðum inn í eftir á og segist ekki vita þau á ensku.
Já, Líbanon prinsessan er alveg ágætis stúlkukind nema þegar hún byrjar að segja frá því þegar hún var að kaupa Prada/Chanel hitt og þetta, af því hún byrjar alltaf á því að segja okkur að hún sé ekki að reyna að monta sig af því að hún eigi mikið af peningum. Í dag fóru síðan Líbanon prinsessan og Póllands erfinginn (hef gefið mér að sú pía sé efnuð miðað við samræður hennar við Líbanon prinsessuna í dag) í hróka samræðum í miðjum tímanum um að Hérmes og Chanel væru nú bara einu luxury brandin eftir í dag. Þetta fengu þær út vegna þess að þessi fyrirtæki veittu þjónustu eins og þær væru að fara á veitingahús (örugglega byggt á persónulegri reynslu) og hefði ennþá upprunalegu gæðin og hráefnin. Þær voru einnig sammála um að Marc Jacobs hefði nú bara eyðilagt Louis Vuitton og það merki væri nú bara orðið ekki neitt eða eins og Líbanon prinsessan segir svo oft: Disgusting! Síðan til að setja punktinn yfir i-ið á þessum mikilfenglegu samræðum henti Líbanon prinsessan inn sögu af henni og pabba hennar í Prada.
Á þessum tímapunkti þagði almúgurinn þ.e.a.s. restin af stelpunum.
Mér var skapi næst að öskra eitthvað út í loftið til að halda uppi heiðri annarra fatabúða og það helst á frönsku upp á að Líbanon prinsessan myndi skilja mig.
Þó að mig hafi sárnað mjög allt þetta diss á Louis Vuitton og Marc Jacobs þurfti nú lítið annað en Kit Kat og kók til að hressa mig við.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Breytt 2.2.2011 kl. 00:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Makalaus
30.1.2011 | 18:30
Þórdís lánaði mér líka þessar miklu heimsbókmenntir um daginn og er ég búin að sitja límd yfir bókinni síðustu daga og átt erfitt með að slíta mig frá henni. Þessi snilldar bók er eftir Þorbjörgu Öldu Marínósdóttur og heitir Makalaus. Bókin gaf mér að vísu miklar ranghugmyndir um lífið, t.d. að það að segja woop woop vekji lukku og að rauðvíns/hvítvínsdrykkja sé algjört must. Þrátt fyrir þessar ranghugmyndir ætla ég líka lesa næstu bók eftir hana en hún heitir Dömusiðir.
Í vikunni var Birkir ekki alveg að haga sér vel og ég var orðin ágætlega pirruð. Eftir að hafa beðið hann um hætta nokkrum sinnum, missti ég síðan út úr mér: Ekki láta eins og þú sért tveggja ára!!! Ég náttúrulega dó úr hlátri af sjálfri mér þar sem drengurinn er 2 ára. Vikan var annars frekar róleg þar sem Birtingur var veikur og kom ekki alla vikuna, honum var að vísu sárt saknað. Þetta gaf mér tíma til að safna upp orku þar sem þeir eru ótrúlega duglegir þessa dagana að espa hvorn annan upp í eltingaleiki og búa til þvílíkan hávaða. Þeir voru samt alveg kostulegir allan föstudaginn því þeir höfðu saknað hvors annars svo mikið að þeir föðmuðust og kysstust í gríð og erg.
Ég og Þórdís fundum frábæran pelsasala í Camden á laugardaginn. Þessi kona er með mikið úrval af pelsum úr kanínufeldi á rosalega sanngjörnu verði. Flestir voru á 85 pund en það er svipað verð og maður gæti keypt fake pels í búðum eins og River Island ef ekki ódýrara. Sölukonan þurfti ekki að gera mikið til að selja okkur ágæti pelsa, en þar sem það er rosalega kalt núna og pelsar eru heitir var hún kominn með okkur á sitt band mjög fljótt. Núna þarf ég bara að leggjast á bæn og vona að einhver sem ætlar að gefa mér afmælisgjöf heyri. BTW, ég á afmæli 26. febrúar og allir eru velkomnir í kökur og kaffi upp úr 3 sama dag.
Það er meira í Camden en pelsabásinn en þar er líka að finna rosalega góðan matarmarkað þar sem seldar eru heimsins bestu súkkulaðibitakökur og reyndar líka alveg allskonar annar matur en þessar kökur standa án efa upp úr. Mæli eindregið með þessum markaði fyrir þá sem eru í London hugleiðingum í kringum afmælisdaginn minn.
Í morgun skellti ég mér í Pilates tíma og það var rosalega skemmtilegt þar sem kennarinn að mínu mati var ótrúlega fyndinn. Hann var að henda inn setningum á borð við:
You are not going to be like Wonder woman so relax a little
Go on touch your bottom, it´s Sunday
Pretend someone hot is watching you, like Brad Pitt or no he´s old
Allavega hló ég oft mjög mikið af honum.
Þar sem Erik og Bylgja eru svo skemmtileg hef ég ákveðið að vera hérna fram í lok júlí og koma bara sterk inn (og kannski smá brún) í byrjun ágúst í brúðkaupinu hjá Ellen og Davíð. Ásamt því að hafa kynnt mér fyrir Stir fry, Sjöu og heimsins besta kaffihúsi, Starbucks, eru þau bara ekki svo slæm. Skemmir heldur ekki að við séum að fara á klikkaða tónleika 30.júní woop woop! Ég sé því fram á ákaflega skemmtilegt sumar í faðmi London fjölskyldunnar.
Henti inn mynd af þessum lukkulegu hjónum til að demonstrate-a hversu skemmtileg þau eru.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
tigertiger
26.1.2011 | 20:36
Ég og Þórdís erum algjörlega búnar að bæta upp fyrir djammleysið fyrir jól. Ég tel að systir hennar Þórdísar, Valdís, sé að hafa þessu slæmu áhrif á okkur.
Á fimmtudaginn síðastliðinn fórum við á Dikta tónleika og gerðum allt vitlaust, sáum helling af Íslendingum og skemmtum okkur konunglega.
Á laugardagskvöldið skelltum við okkur almennilega út á lífið og fórum á stað sem heitir tigertiger og er rétt hjá Leicester Squere. Ég mætti galvösk á Piccadilly Circus hress og tilbúinn í gleðina, en stelpurnar voru örlítið á eftir áætlun þannig ég þurfti að bíða þar eftir þeim. Svona til að skemmta mér rétt á meðan ég beið hóf ég samræður við einn af Clubhunterunum á svæðinu.
Talið barst að því að hann væri frá Ungverjalandi og þá aldeilis sá ég fram að samræðurnar myndu ná nýjum hæðum yfir handboltanum. Boy, was I wrong!
Samræðurnar voru eitthvað á þennan veginn:
Ég: Do you watch handball?
Clubhunterinn: Yeah, the one in the swimmingpool with the ball?
Ég: UUUUUUUUUUUUUUUUUUUU no!
Clubhunter: Yeah I know, the one with the people in the swimming pool. So you like sports?
Ég: (Augljóslega orðin mjög móðguð að hann hafi ekki vitað að Ísland hafi rúllað yfir þá í HANDBOLTA) No, I don't like sports and there is no swimmingpool!!!!
Gráti næst hélt ég mína leið, langt, langt í burtu frá þessum sundlaugamanni. Þetta gerðist samt allt saman áður en Íslands gafst upp og ákvað að tapa restina af leikjunum.
Tigertiger var rosalegur, það voru hæðir og mismunandi herbergi með mismunandi tónlist. Nú síðan var líka þetta geggjaða Afró á svæðinu sem Þórdís gat ekki tekið augun af allt kvöldið, ekki fyrr en hún hafði komið við það og dansað við manneskjuna sem bar allt þetta hár.
Þegar við ætluðum að leggja af stað heim á leið, bauð einhver kauði henni Valdísi far heim. Hann sagðist búa í Bermondsey og var edrú, stelpurnar búa einmitt líka Bermondsey. Þar sem þær þorðu ekki tvær í bílinn hjá honum, drógu þær mig með og buðu mér að gista hjá sér. Ég var ekki alveg að treysta þessum náunga en um leið og hann splæsti í Mcdonalds á liðið snarbreyttist skoðun mín á honum.
Vikan hjá okkur þríeykinu hófst ekkert alltof vel. Birtingur fékk líka þessa grimmu gubbupest og var fjarverandi í tvo daga. Ég nýtti tækifærið og fór með Birki í Regent park og hafði það huggulegt á kaffihúsi þegar hann tók hádegislúrinn sinn. Birkir var aftur á móti mjög skúffaður yfir fjarveru vinar síns og kvartaði ákaft yfir þeirri ómögulegu stöðu sem hann var kominn í að þurfa bara að leika við mig. Birtingur mætti svo aftur sterkur til leiks í dag og þeir kysstust og föðmuðust og brostu hringinn allan daginn.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
skólagleði
18.1.2011 | 22:33
Ég er búin að sakna þess svo mikið að vera í skóla og að glósa að ég hef hafið lestur á bókinni Veganesti og tek nú niður hnitmiðaða punkta í gríð og erg. Þessi bók er uppfull af skemmtilegum upplýsingum um næringu barna svo að strákarnir verða mun hraustari í ár. Bókin gefur einnig afbragðs ráð til að fá litla kúta til að smakka nýjar matartegundir þannig ég sé fram á að strákarnir eigi eftir að geta torgað bæði hrossabjúgum með bestu lyst.
Fyrsti tíminn í Fashion Marketing var í dag og ég var svo heppin að fá að vera fyrst til að kynna mig og segja svolítið frá mér. Nú ég byrjaði bara á bernsku árunum og hægt og rólega þræddi ég samnemendur mína í gegnum æsku árin og þau erfiðu ár sem unglingsárin geta verið, því næst fór ég snögglega í gegnum sjúkrasöguna mína og sagði frá helstu afrekum mínum á vinnumarkaðinum.
Restin af tímanum gekk bara alveg ljómandi vel og gat ég tekið þátt í lifandi umræðu og hent inn nokkrum góðum punktum. Ég sé nú fram á að ég verði hrókur alls fagnaðar í næstu tímum.
Ég og Þórdís gerðum okkur aldeilis glaðan dag síðastliðinn laugardag og skottuðumst um London þvert og endilanga. Við byrjuðum í Beyglu á London Bridge og rúlluðum síðan afvelta niður að Tower Bridge í þeirri von um að komast upp á brúnna. Veðrið var nú ekki alveg að leika við okkur og hann blés svona all hressilega úr norð austri. Okkur leist nú ekki mikið á það að húka uppi á brúnni í þessu roki svo við rúlluðum niður í Buckingham palace og heilsuðum uppá gömlu. Þessi túristarúntur okkar var allur festur á svokallaða stafræna myndavél gestum og gangandi til mikillar gleði.
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nýir danstaktar
11.1.2011 | 23:32
Ég hef loksins snúið aftur til London town öllum til mikillar gleði. Ég var svo heppin að fljúga út með Björgólfi eldri og frú, svo við gátum nú rætt um kreppuna, fjármagnstekjuskatt og fleira í þeim dúr. Svo fórum við öll í kokteilkvöld hjá gömlu og skiptumst á að máta kórónunar hennar. Það var blast.
Á mánudeginum tók svo alvaran við.
Fyrsti dagurinn hjá okkur þremenningunum gekk ekkert alltof. Birkir mótmælti því allan morguninn að vera hjá mér en eftir hádegislúrinn var hann eins og nýr. Birtingi fannst þetta lítið mál fyrir utan það, þegar hann hentist niður stigann en sem betur fer slasaðist hann ekkert, fékk þó smá skrámu á nefið. Ég aftur á móti hjartsláttartruflanir og þjáðist af oföndun í dálítinn tíma. Birtingur var fljótur að jafna sig eftir flugið og var ekki lengi að vippa sér aftur í leik með vini sínum. Ég þurfti hins vegar örlítið lengri tíma í það að jafna mig og fullvissa mig um að hann væri hvorki með innvortis blæðingar né alvarlega höfuðáverka.
Næsti dagur gekk miklu betur og allir voru syngjandi glaðir í lok dags. Ég og litli kaffihúsaunnandinn byrjuðum daginn á kaffihúsi og deildum rótsterkum kakóbolla og ljúffengri Skinny Blueberry Muffin. Það kætti litla kaffihúsaunnandann ógurlega. Birtingur mætti síðan galvaskur til okkar um 11 leytið og þá hófst endalaust stuð.
Birkir sýndi nýja danstakta í dag og ég sé fram á að þeir muni þróast hratt á næstu vikum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Jólabarnið
3.12.2010 | 18:15
Ég stórslasaði Birting um daginn, hann sat í fanginu á mér í stiganum og stakk sér fram, með þeim afleiðingum að út úr enninu á honum braust fram líka þetta rosalega horn. Ég þurfti áfallahjálp þegar ég sá drenginn breytast í einhyrning fyrir framan mig og hringdi í mömmu. Gerði mamma mér þá þann óleik að svara ekki símanum, loks þegar ég var alveg að missa meðvitund af stressi svaraði hún og fullvissaði mig um að það væri í fínu lagi með hann. Ég er ekki viss um að ég þurfi að passa hann aftur í framtíðinni.
Um helgina keyrðum við jólagleðina í gang. Ég, Birtingur, Birkir, Ylfa og Jói fórum út í Brunswick á föstudaginn og sáum þegar það var kveikt á jólaljósunum. Við fengum heitt kakó og súkkulaðibitaköku til að hita okkur upp því það var ótrúlega kalt. Síðan voru einhverjir söngvarar sem komu fram sem voru rosalega lélegir en við vorum greinilega ein um það því aðrir héldu ekki vatni yfir þeim. Kynnirinn sem sá um að stjórna þessu skemmtanahaldi var ekki að verri endanum, minnti einna helst á bróður Geira á Goldfingurm klæddur líka í þennan agalega smart skósíða hlébarða kápu. Þó að skemmtiatriðin hafi ekki verið upp á 10 var mikill jólaandi yfir þessu öllu saman.
Ég var búinn að ákveða að taka til í herberginu mínu á laugardaginn, það tókst líka svona rosalega vel að allur dagurinn fór í það. Ég get ekki sagt að það sé orðið hreint í herberginu en ég náði þó að búa til tossalista yfir það að taka til í herberginu mínu. Jólaandinn var orðinn þvílíkur hjá mér seinnipart laugardagsins að ég henti í tvær sortir af smákökum. Þórdís kom og gisti hjá mér af því að henni var boðið í aðventusunnudagsjólabrunchinn okkar á sunnudagsmorguninn.
Við fórum í diddi dance á fimmtudaginn og vöktum ekki mikla lukka meðal foreldranna. Strákarnir voru rosalega hressir og hlupu út um allt og fóru bakvið gluggatjöldin að fela sig. Í fyrstu var ég eitthvað að reyna að fá þá til að gera æfingarnar en ákvað síðan að þeir mættu alveg hlaupa eins og vitleysingar út um allt og leika sér. Eftir smá stund voru þeir búnir að lokka alla hina krakkana með sér í fíflalætin, hlaupandi út um allt. Þetta vakti ekki mikla gleði hjá foreldrum hinna barnanna þar sem þau voru ein eftir að gera æfingarnar. Ég beið bara eftir því að okkur yrði vísað á dyr.
Birkir syngur orðið með öllum lögum og ef þau eru útlensk og hann nær ekki alveg textanum þá allavega reynir hann að tóna með. Birtingur hefur þótt skemmtilegra að hlusta bara á þegar ég syng fyrir hann en núna er hann kominn með alveg glænýtt lag eftir sjálfan sig og raular það allan daginn. Það er tralllalllallallallalalalalallala og restin er í svipuðum gír.
Strákarnir fóru í bað áðan og það var ekkert smá gaman eins og er að sjá á þessu video.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)