Bloggfærslur mánaðarins, október 2012

Krumminn á farandsfæti

Þá hefur Krumminn ákveðið að stíga þau skref sem þykja nauðsynleg í að fullorðnast og hefur því ákveðið að flytja að heiman. Áætlaðir flutningar var upphaflega í byrjun október en það virðist hafa breyst eitthvað því að þær áætlanir hafa skilið íbúðina eftir fokhelda. Ekki nóg með að íbúðin sé orðin fokheld þá vantar orðið einn klósettvegginn sem gerir þá einföldu aðgerð að kasta af sér þvagi í ró og næði mjög erfiða, aftur á móti er gífurlega gott flæði í íbúðinni.

Pabbi hefur fengið það verkefni að hafa yfir umsjón með þessu verkefni á meðan ég er í skólanum en það má teljast alveg hreint ótrúlegt hvað drengurinn getur. Nú Þúsundþjalasmiðurinn er að sjálfsögðu The Project Manager sem felst í því að ég hef loka orðið þegar kemur að mikilvægri ákvarðanatöku. Svo virðist þó sem að drengurinn hafi ekki mikinn áhuga að fá hjálp frá The Project Manager því þrátt fyrir að hafa boðið fram aðstoð mína síðustu tvær helgar þá hefur hann afþakkað pent. Drengurinn er þó duglegur að gefa mér update af þróun mála og segir hann að verkið fljúgi áfram sem er að vísu eitthvað sem The Project Manager er ekki alveg sammála.

Í dag hins vegar þáði hann hjálp mína og fékk ég að stíga fæti inn í slottið í Álftamýrinni. Svo virðist sem menn hafi aðeins tapað sér í gleðinni þegar það var verið að reyna að komast að pípulögnunum og er nú komið afskaplega skemmtilegt gat á vegginn sem skilur af klósettið og barnaherbergið. Spurning hvað menn gera í því! Drengurinn hefur þó fullvissað mig um að þetta sé í himnalagi og verði fljótt lagað.

Eftir að Drengurinn tók á það ráð að skipta um lás á útidyrahurðinni að stigaganginum hefur hann vakið mikla lukku meðal íbúanna sem er að sjálfsögðu bara hið besta mál. Það verður þá vonandi betur tekið í það þegar heita vatnið verður tekið af blokkinni í nokkra tíma á morgun vegna breytinga á pípulögnunum. Konan fyrir ofan mig er ein aðdáendum Drengsins og hefur nokkrum sinnum tekið hann á tal. Sjálf er hún mjög nýlega búin að taka sína íbúð í gegn og segir það vera alveg eins og að fá nýja íbúð. Hún sýnir þessum breytingum á minni íbúð mikinn skilning enda eins og ég sagði þá var hún bara að klára að taka íbúðina sína í gegn. Þessar breytingar áttu sér stað fyrir einungis mjög skömmum tíma eða til að vera nákvæm árið 1973.

Hér eru svo nokkrar myndir af slottinu

IMG006 

Stofan

IMG007

Klósettið og Drengurinn

IMG025

Afrakstur gleðinnar með hamarinn

 

XOXO

LOVE TYRA 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband