Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Sumarið komið

Ég er frekar kvefuð þessa dagana og ég var ekki búin að átta mig á því að ég finn ekki neina lykt og boy ó boy fékk ég það í bakið í dag.
Ylfa kom að sækja Birting og sagði við mig að annar hvor þeirra væri nú búin að gera númer 2. Síðan förum við að tala saman og þá tekur hún eftir því að sokkabuxurnar hans Birkis voru orðnar blautar. Við höldum áfram að tala saman en hættum snögglega þegar við tökum báðar eftir því að Birkir er að nudda sér upp við vegginn og í leiðinni að dreifa innihaldi bleyjunnar á hann. Það góða við þetta allt saman er að ég fann enga lykt.

Seinna um daginn kem ég upp í stofu og sé að Bylgja er á hinum enda línunnar í skype viðtali og Erik og Birkir inni á baði. Ég sest í makindum mínum á gólfið fyrir framan tölvuna og fer að segja henni frá sögunni hérna á undan en átta mig allt í einu á því að gólfið er allt blautt. Birkir hafði þá pissað á sig og ég fann að sjálfsögðu enga lykt og settist bara beint í hlandið.

Líf au-pair stúlkunnar er nú samt að sjálfsögðu oftast dans á rósum. Ég hef samt ákveðið að fresta barneignum fram yfir 30 og vera með að minnsta kosti tvær barnfóstrur, eina night nanny og eina day.

Veðrið í síðustu viku var alveg glimrandi gott og ég er ekki frá því ginger kid-ið hafi náð sér í smá lit í andlitið og að sjálfsögðu góðan brunablett á bakið. Á föstudaginn síðasta var ég bara ein með Birki þannig við lögðum afstað í lestarferð snemma þann morguninn. Ferðinni var heitið í Regent garðinn til að sóla okkur. Við tókum með okkur nesti og teppi og höfðum það huggulegt í grasinu með banana í annari og djús í hinni afar sátt með lífið og tilveruna. Síðan hallaði Birkir sér upp úr hádegi og ég lá og las bók á meðan með þeim afleiðingum að ég brann á bakinu.

IMG_0314

Notið sólarvörn krakkar!!!

IMG_0377

Birkir neitaði að vera í fötum á föstudagskvöldið og dansaði út í glugga nakinn fyrir nágranna okkar.

XOXO LOVE TYRA


Myndir

Nokkrar myndir úr daglegu lífi hjá tríóinu

IMG_0022

Birkir átti eitthvað slæman dag og steinsofnaði eftir að hafa hlustað á mig söngla í hálftíma

IMG_0061

IMG_0059

IMG_0073

IMG_0039

Rétt áður en Birkir skóflaði málningu upp í munn

IMG_0120


Vor í London

Það er ofboðslega gott að búa í London og ég sé alveg fram á að búa hérna seinna meir en akkurat núna sé ég Ísland í hillingum. Helsta ástæðan er örugglega sú að ég sakna mömmu & pabba ofboðslega mikið og myndi vel þiggja faðmlag frá þeim, ég er nú einu sinni litla stelpan þeirra og má því alveg haga mér þannig þótt ég sé orðin 20+.
Svo væri ég heldur ekkert á móti að geta skroppið í sund, það vantar svolítið hérna í London, sérstaklega fyrir sunnudagana.

Annars er veðrið hérna í London alveg æðislegt og vorið í fullum skrúða. Ég var úti með strákana einn morguninn í vikunni og var eitthvað að pirrast yfir því að þurfa að fara í jakkann minn aftur þegar sólin hvarf á bakvið ský. Ég hætti snarlega að pirra mig yfir því þegar ég las alla snjóstatusana frá Íslandi á facebook seinna um daginn.

 

06032011079 

 

Ég fór í Healt MOT í ræktinni minni á mánudaginn en það er svona alsherjar fitness test sem er frítt í boði í ræktinni minni. Hæðin og þyngdin er mæld, hjartsláttur í hvíld, blóðsykurinn, ummál, blóðþrýstingur og svo er maður spurður um hitt og þetta. Þetta er þvílíkt mikil snilld að mínu mati og vantar alveg inn í íslensku ræktirnar. Ég var búin að fara einu sinni áður en var frekar feimin, þannig þegar ég var spurð hvort ég vildi einhverjar ráðleggingar afþakkaði ég bara pent. Í þetta skipti ákvað ég hins vegar að þiggja ráðleggingar þar sem ég hef átt mjög erfitt með að draga mig af stað í rætkina og borðað mjög óhollt upp á síðkastið. Konan sem gerði prófið skrifaði niður hvar ég gæti bætt mig og merkti við tímana sem voru sniðugir fyrir mig, síðan bauð hún mér upp á það að fá tíma með einkaþjálfara svo hann gæti gert prógramm fyrir mig. Ég var voða efins með að fá þennan tíma hjá einkaþjálfaranum af því að ég hélt að það myndi kosta svo mikið en auðvitað var það svo frítt.

Það skemmtilega við þetta allt saman var að ég hef bætt mig töluvert og aukið fitness levelið mitt upp í það að vera frábært eða í sama flokki og 10 % breta í mínu aldursboxi. Þar sem ég hef meira verið styrktaraðili ræktarinnar í janúar og febrúar kom þetta mér töluvert á óvart en síðan þegar ég fór að hugsa betur út í það þá labba ég út um allt og passa tvo tveggja ára ofur fjöruga stráka svo það hlaut að skila sér. Svo fyrir alla þá sem langar að hækka fitness levelið sitt og verða heilsuhraustari, go have babies!

Á þriðjudaginn var síðasta kvöldið mitt í short coursinum og því komið að því að sýna hugmyndirnar okkar. Ég var auðvitað á síðustu stundu að klára verkefnið mitt en náði að klára það 10 mínútum fyrir tímann. Þá hoppaði ég upp í leigubíl og byrjaði að kúpla mig inn í rétta stress andann. Þegar 4 manneskjur áttu eftir að sýna verkefnið sitt og ég þar með talinn, var ég búin að slá inn 911 í símann minn bara svona til öryggis ef hjartað skyldi fara að gefa sig. Nú á meðan ég sagði frá hugmyndinni var ég í hálfgerði móki og gleymdi t.d. að segja frá vörunni minni sem var eiginlega kjarni verkefnisins en sem betur fer spurði kennarinn hvort ég gæti sagt aðeins frá því hvað ég ætlaði að selja.

Stressið var svo mikið hjá mér að það eina sem ég man eftir úr tímanum er að verkefni Líbanon prinsessunnar var frekar súrt en ég bjóst að sjálfsögðu við eitthverri flugeldasýningu og að við myndum allar fá Hermés tösku í lokin. Nei, svo fór ekki og er ég því ekki Hermés töskunni ríkari.

Eftir tíman fór ég, kennarinn og tvær aðrar stelpur á pólskan bar en bæði kennarinn og Magdalena (fyrrum póllandserfinginn) eru frá Póllandi. Ég smakkaði einhvern drykk sem var eins og apple pie á bragðið en lét matinn alveg eiga sig vegna slæmrar reynslu af honum. Julia og Magdalega fengu sér báðar einhverjar pólskar kræsingar og vildu ólmar að ég smakkaði eftir að ég hafði sagt þeim frá mjög slæmri reynslu af innyflasúpu og öðru svipuðu sem ég hafði smakkað af pólskum mat. Þessi matur var mikið skárri en ég held að ég haldi mig bara áfram við mína fæðutegund, nammi.

polish-soup-03 

Ég ákvað í gær að vera svolítið menningarleg og fara og taka bók af British Library sem er hérna rétt hjá mér. Ég rétt steig inn í anddyrið á byggingunni en þar sem þetta er svo stórt og flókið eitthvað og ég sá ekki vott af bókum tók ég u-beyju út og beint inn á Starbucks. 

XOXO
LOVE TYRA


I Love You & OMG

Ég ákvað að bæta orðaforða Birkis örlítið og kenndi honum að segja ó my god og I love you. Það tók hann smá tíma að ná tökum á ó my god en ég þurfti bara að segja I love you nokkrum sinnum á meðan bleygjuskipti fóru fram og þá var hann búinn að master I LOVE YOU. Fyrr í vetur var ég eitthvað að reyna að kenna honum að segja Justin Bieber en þar sem Bieberinn verður pottþétt dottinn í mútur þegar Birkir loksins getur gert sér grein fyrir því hver hann er hefur það alveg dottið uppfyrir.

Helgin er búin að vera ansi róleg hjá okkur á King's Cross Road fyrir utan smá uppákomu þegar við náðum að læsa okkur öll úti. Við vorum búin að taka okkur öll til og ætluðum í Regent en þar sem við uppgötvuðum að enginn okkar væri með húslykla þegar við vorum öll komin niður varð Erik að vera eftir og bíða eftir lyklasmiðnum. Ég, Bylgja og Birkir röltum út á róló og kíktum aðeins á kaffihús á meðan við biðum eftir Erik. Það að láta lyklasmiðinn koma og opna íbúðina kostaði góð 95 pund  eða 17.836 krónur og 25 aura. Núna munum við öll ganga með lykla um hálsinn og Birkir líka.

Þar sem ég hef átt að vera að vinna verkefnið mitt í dag hef ég náð að áorka öllu öðru sem ég er vön að setja á hakann. Ég fór meðal annars í 90 mínútna yoga tíma, skellti mér síðan á skíðatækið í ræktinni, fór því næst í það langa gufu að ég var lögst útaf og byrjuð að dotta og tók síðan smá göngutúr um Angel. Það að ég fari í ræktina er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi þar sem ég næ alltaf að réttlæta fyrir sjálfri mér eftir daginn að ég sé svo þreytt og jú ég hafi nú hlaupið aðeins með strákunum. Eitthvað varð ég þó að taka mig á í þessum málum þar sem einkaþjálfari úr ræktinni hringdi í mig á fimmtudaginn og spurði hvort ég vildi ekki koma í Health MOT. Ekki gat ég staðist þessa super hressu rödd hinum megin á línunni og lét fallast. Ég er mjög spennt að sjá hvað mun koma út úr þessu MOT þar sem ég er búin að hafa það notalegt uppi í rúmi frá jólum með kók í æð.

Verkefnið í kvöldnámskeiðinu á að vera tilbúið fyrir lokatímann sem er á þriðjudaginn. Ég fékk nána lýsingu af target consumer og átti að koma með einhverja hugmynd til að selja þeim hóp. Target hópurinn minn í grófum dráttum er írönsk kona á aldursbilinu 25 - 35 ára og á sand af seðlum og elskar alla vestræna tísku. Ég ákvað að opna í þykjustunni búð á Regent street með íslenskri hönnun. Hönnuðurirnir sem ég valdi voru STEINUNN, Andersen & Lauth, Kalda, Kron by Kron Kron og Royal Extreme. Íslensk hönnun er í mikilli uppsveiflu og mig fannst alveg ótrúlegt hvað hún er seld víða. Það er til dæmis hægt að kaupa Kron skóna á ASOS og Alexa Chung hefur sést í Andersen & Lauth kjól. Fyrir þá sem ekki vita þá Alexa Chung tísku átrúnaðargoð Breta um þessar mundir en þeir halda varla vatni yfir þessari píu.

Ég prufukeyrði nýju súkkulaði uppskriftabókina mína í gærkvöldi og bakaði Brownie ostaköku með ferskum hindberjum. Hún var ekkert lítið delish og get ég ekki beðið eftir að fá að prófa eitthvað annað úr henni. Ylfa & Jói & Birtingur voru svo frábær að gefa mér hana í afmælisgjöf ásamt súkkulaði og heitir hún Ultimate Chocolate Recipes frá Green & Black súkkulaði meistaranum.

 

súkkulaði
Uppskriftabókin
DSC00858
Áður en hún fór í ofninn
DSC00859
DSC00861
Tadahhhh!!!!
XOXO LOVE TYRA

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband