Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011

Makalaus

Þórdís lánaði mér líka þessar miklu heimsbókmenntir um daginn og er ég búin að sitja límd yfir bókinni síðustu daga og átt erfitt með að slíta mig frá henni. Þessi snilldar bók er eftir Þorbjörgu Öldu Marínósdóttur og heitir Makalaus. Bókin gaf mér að vísu miklar ranghugmyndir um lífið, t.d. að það að segja woop woop vekji lukku og að rauðvíns/hvítvínsdrykkja sé algjört must. Þrátt fyrir þessar ranghugmyndir ætla ég líka lesa næstu bók eftir hana en hún heitir Dömusiðir.

Í vikunni var Birkir ekki alveg að haga sér vel og ég var orðin ágætlega pirruð. Eftir að hafa beðið hann um hætta nokkrum sinnum, missti ég síðan út úr mér: Ekki láta eins og þú sért tveggja ára!!! Ég náttúrulega dó úr hlátri af sjálfri mér þar sem drengurinn er 2 ára. Vikan var annars frekar róleg þar sem Birtingur var veikur og kom ekki alla vikuna, honum var að vísu sárt saknað. Þetta gaf mér tíma til að safna upp orku þar sem þeir eru ótrúlega duglegir þessa dagana að espa hvorn annan upp í eltingaleiki og búa til þvílíkan hávaða. Þeir voru samt alveg kostulegir allan föstudaginn því þeir höfðu saknað hvors annars svo mikið að þeir föðmuðust og kysstust í gríð og erg.

Ég og Þórdís fundum frábæran pelsasala í Camden á laugardaginn. Þessi kona er með mikið úrval af pelsum úr kanínufeldi á rosalega sanngjörnu verði. Flestir voru á 85 pund en það er svipað verð og maður gæti keypt fake pels í búðum eins og River Island ef ekki ódýrara. Sölukonan þurfti ekki að gera mikið til að selja okkur ágæti pelsa, en þar sem það er rosalega kalt núna og pelsar eru heitir var hún kominn með okkur á sitt band mjög fljótt. Núna þarf ég bara að leggjast á bæn og vona að einhver sem ætlar að gefa mér afmælisgjöf heyri. BTW, ég á afmæli 26. febrúar og allir eru velkomnir í kökur og kaffi upp úr 3 sama dag.
Það er meira í Camden en pelsabásinn en þar er líka að finna rosalega góðan matarmarkað þar sem seldar eru heimsins bestu súkkulaðibitakökur og reyndar líka alveg allskonar annar matur en þessar kökur standa án efa upp úr. Mæli eindregið með þessum markaði fyrir þá sem eru í London hugleiðingum í kringum afmælisdaginn minn.

Í morgun skellti ég mér í Pilates tíma og það var rosalega skemmtilegt þar sem kennarinn að mínu mati var ótrúlega fyndinn. Hann var að henda inn setningum á borð við:
You are not going to be like Wonder woman so relax a little
Go on touch your bottom, it´s Sunday
Pretend someone hot is watching you, like Brad Pitt or no he´s old
Allavega hló ég oft mjög mikið af honum.

Þar sem Erik og Bylgja eru svo skemmtileg hef ég ákveðið að vera hérna fram í lok júlí og koma bara sterk inn (og kannski smá brún) í byrjun ágúst í brúðkaupinu hjá Ellen og Davíð. Ásamt því að hafa kynnt mér fyrir Stir fry, Sjöu og heimsins besta kaffihúsi, Starbucks, eru þau bara ekki svo slæm. Skemmir heldur ekki að við séum að fara á klikkaða tónleika 30.júní woop woop! Ég sé því fram á ákaflega skemmtilegt sumar í faðmi London fjölskyldunnar.


erikbylgja

Henti inn mynd af þessum lukkulegu hjónum til að demonstrate-a hversu skemmtileg þau eru.

XOXO
LOVE TYRA


tigertiger

Ég og Þórdís erum algjörlega búnar að bæta upp fyrir djammleysið fyrir jól. Ég tel að systir hennar Þórdísar, Valdís, sé að hafa þessu slæmu áhrif á okkur.
Á fimmtudaginn síðastliðinn fórum við á Dikta tónleika og gerðum allt vitlaust, sáum helling af Íslendingum og skemmtum okkur konunglega.

 
Á laugardagskvöldið skelltum við okkur almennilega út á lífið og fórum á stað sem heitir tigertiger og er rétt hjá Leicester Squere. Ég mætti galvösk á Piccadilly Circus hress og tilbúinn í gleðina, en stelpurnar voru örlítið á eftir áætlun þannig ég þurfti að bíða þar eftir þeim. Svona til að skemmta mér rétt á meðan ég beið hóf ég samræður við einn af Clubhunterunum á svæðinu.
Talið barst að því að hann væri frá Ungverjalandi og þá aldeilis sá ég fram að samræðurnar myndu ná nýjum hæðum yfir handboltanum. Boy, was I wrong!
Samræðurnar voru eitthvað á þennan veginn:

Ég: Do you watch handball?
Clubhunterinn: Yeah, the one in the swimmingpool with the ball?
Ég: UUUUUUUUUUUUUUUUUUUU no!
Clubhunter: Yeah I know, the one with the people in the swimming pool. So you like sports?
Ég: (Augljóslega orðin mjög móðguð að hann hafi ekki vitað að Ísland hafi rúllað yfir þá í HANDBOLTA) No, I don't like sports and there is no swimmingpool!!!!

Gráti næst hélt ég mína leið, langt, langt í burtu frá þessum sundlaugamanni. Þetta gerðist samt allt saman áður en Íslands gafst upp og ákvað að tapa restina af leikjunum.

Tigertiger var rosalegur, það voru hæðir og mismunandi herbergi með mismunandi tónlist. Nú síðan var líka þetta geggjaða Afró á svæðinu sem Þórdís gat ekki tekið augun af allt kvöldið, ekki fyrr en hún hafði komið við það og dansað við manneskjuna sem bar allt þetta hár.
Þegar við ætluðum að leggja af stað heim á leið, bauð einhver kauði henni Valdísi far heim. Hann sagðist búa í Bermondsey og var edrú, stelpurnar búa einmitt líka Bermondsey. Þar sem þær þorðu ekki tvær í bílinn hjá honum, drógu þær mig með og buðu mér að gista hjá sér. Ég var ekki alveg að treysta þessum náunga en um leið og hann splæsti í Mcdonalds á liðið snarbreyttist skoðun mín á honum.

Vikan hjá okkur þríeykinu hófst ekkert alltof vel. Birtingur fékk líka þessa grimmu gubbupest og var fjarverandi í tvo daga. Ég nýtti tækifærið og fór með Birki í Regent park og hafði það huggulegt á kaffihúsi þegar hann tók hádegislúrinn sinn. Birkir var aftur á móti mjög skúffaður yfir fjarveru vinar síns og kvartaði ákaft yfir þeirri ómögulegu stöðu sem hann var kominn í að þurfa bara að leika við mig. Birtingur mætti svo aftur sterkur til leiks í dag og þeir kysstust og föðmuðust og brostu hringinn allan daginn. 

XOXO

LOVE TYRA 


skólagleði

Ég er búin að sakna þess svo mikið að vera í skóla og að glósa að ég hef hafið lestur á bókinni Veganesti og tek nú niður hnitmiðaða punkta í gríð og erg. Þessi bók er uppfull af skemmtilegum upplýsingum um næringu barna svo að strákarnir verða mun hraustari í ár. Bókin gefur einnig afbragðs ráð til að fá litla kúta til að smakka nýjar matartegundir þannig ég sé fram á að strákarnir eigi eftir að geta torgað bæði hrossabjúgum með bestu lyst.

Fyrsti tíminn í Fashion Marketing var í dag og ég var svo heppin að fá að vera fyrst til að kynna mig og segja svolítið frá mér. Nú ég byrjaði bara á bernsku árunum og hægt og rólega þræddi ég samnemendur mína í gegnum æsku árin og þau erfiðu ár sem unglingsárin geta verið, því næst fór ég snögglega í gegnum sjúkrasöguna mína og sagði frá helstu afrekum mínum á vinnumarkaðinum.
Restin af tímanum gekk bara alveg ljómandi vel og gat ég tekið þátt í lifandi umræðu og hent inn nokkrum góðum punktum. Ég sé nú fram á að ég verði hrókur alls fagnaðar í næstu tímum.


Ég og Þórdís gerðum okkur aldeilis glaðan dag síðastliðinn laugardag og skottuðumst um London þvert og endilanga. Við byrjuðum í Beyglu á London Bridge og rúlluðum síðan afvelta niður að Tower Bridge í þeirri von um að komast upp á brúnna. Veðrið var nú ekki alveg að leika við okkur og hann blés svona all hressilega úr norð austri. Okkur leist nú ekki mikið á það að húka uppi á brúnni í þessu roki svo við rúlluðum niður í Buckingham palace og heilsuðum uppá gömlu. Þessi túristarúntur okkar var allur festur á svokallaða stafræna myndavél gestum og gangandi til mikillar gleði.

 

163253_486765888588_683358588_6228994_6673067_n
165123_486766368588_683358588_6229009_7871934_n
 167829_486766018588_683358588_6228998_7089157_n
XOXO
LOVE TYRA
STATUS UPDATE: Það er komið gat á Janus gallann!!!!!!

Nýir danstaktar

Ég hef loksins snúið aftur til London town öllum til mikillar gleði. Ég var svo heppin að fljúga út með Björgólfi eldri og frú, svo við gátum nú rætt um kreppuna, fjármagnstekjuskatt og fleira í þeim dúr. Svo fórum við öll í kokteilkvöld hjá gömlu og skiptumst á að máta kórónunar hennar. Það var blast.

Á mánudeginum tók svo alvaran við.

Fyrsti dagurinn hjá okkur þremenningunum gekk ekkert alltof. Birkir mótmælti því allan morguninn að vera hjá mér en eftir hádegislúrinn var hann eins og nýr. Birtingi fannst þetta lítið mál fyrir utan það, þegar hann hentist niður stigann en sem betur fer slasaðist hann ekkert, fékk þó smá skrámu á nefið. Ég aftur á móti hjartsláttartruflanir og þjáðist af oföndun í dálítinn tíma. Birtingur var fljótur að jafna sig eftir flugið og var ekki lengi að vippa sér aftur í leik með vini sínum. Ég þurfti hins vegar örlítið lengri tíma í það að jafna mig og fullvissa mig um að hann væri hvorki með innvortis blæðingar né alvarlega höfuðáverka.

Næsti dagur gekk miklu betur og allir voru syngjandi glaðir í lok dags. Ég og litli kaffihúsaunnandinn byrjuðum daginn á kaffihúsi og deildum rótsterkum kakóbolla og ljúffengri Skinny Blueberry Muffin. Það kætti litla kaffihúsaunnandann ógurlega. Birtingur mætti síðan galvaskur til okkar um 11 leytið og þá hófst endalaust stuð.

Birkir sýndi nýja danstakta í dag og ég sé fram á að þeir muni þróast hratt á næstu vikum.

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband