Bloggfærslur mánaðarins, september 2010
Janus gallinn
27.9.2010 | 21:24
Janus gallinn var að gera það gott í dag! Það var nefnilega frekar kalt í gær þegar ég var að fara að sofa og þá sá ég mér ekki fært um annað en að henda mér í Janus gallann og glænýju hnéháu ullarsokkana úr H&M. Þegar ég vaknaði svo var enn kalt svo ég ákvað að dvelja örlítið lengur í janus gallann og henti mér bara í aðra peysu yfir gallann og skellti í mig tebolla. Bretar kynda nefnilega ekki húsin sín á sumrin og það hefur verið bara rosalega milt og gott alveg þangað til í gær, svo alveg eins gott að fara bara eftir siðum Breta. Bylgja gerði heiðarlega tilraun í morgun til að kveikja á hitanum en ennþá er ekkert farið að gerast.... and the clock is ticking.
Það var stórt verkefni sem ég þurfti að takast á við í dag sem Au-pair en það var að vakna klukkan 8. Það gekk bara vonum framar og ég sé fram á að á morgun verði ég komin fram úr klukkan 8. Ég þarf náttúrulega bara aðlögun eins og strákarnir.
Birtingur og Ylfa til okkar klukkan 9 og þá hófst leikgleðin. Birkir var ekkert alltof spenntur yfir þessu öllu að þurfa að deila dótinu sínu en hann þarf bara aðlögun, eins og ég. Þeir voru síðan geðveikt duglegir og sváfu alveg báðir í 2 og hálfan klukkutíma sem var ekki amalegt fyrir mig, því ég fékk minn klukkutíma blund líka. Er virkilega að kunna að meta þessa hádegisblunda. Þeir munu koma sterkir inn í framtíðinni.
Ég fékk geðveikan care pakka í dag frá lang bestasta dreng í heimi, Stefáni. Hann innihélt allt það sem koma mun nammiframleiðslu heimsins í eðlilegt horf. Það var alveg huge bland í poki, nokkrir stórir draumar, blandaður lakkrís og kúlúsúkk. Nú mun ég loksins ná aftur eðlilegri þyngd því ég var kominn með mikinn næringarskort. Pakkinn innihélt einnig tvö Séð og heyrt blöð, sem voru ekki amalegur viðauki handa the Gossip Queen. Síðan var einn minnislykill með í pakkanum. Á minnislyklinum var að finna geðveikar bíómyndir þar á meðal Clueless og ljósmyndir af hinu þessu, m.a. systkinum Stebba, Stefáni, grænu þrumunni og random hlutum, og viti menn það kom tár í augu Londonsfarans. Þetta var eiginlega bara the Ultimate Survivor kit Kristínar Helgu.
Svo síðan til að jafna út nammiát dagsins ætla ég að fara í rætkina með Bylgju eftir kvöldmat....... þ.a.e.s. ef við komumst
E.S. Við fórum í ræktina, labbandi og refsuðum lóðunum grimmt, ásamt því að sýna þessum bretum hvar Davíð keypti ölið.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Tónlistartíminn
25.9.2010 | 11:50
Ég er hrædd um að það hljóti að koma samdráttur hjá nammiframleiðendum í heiminum því að nammiát mitt hefur snarlega minnkað. Aðalástæðan er örugglega að nammi úrvalið er ömurlegt og nærliggjandi sjoppur hafa ekkert úrval. Þetta var frekar erfitt fyrstu dagana, fyrst voru það fráhvarfseinkennin, hita og kuldaköstin og allur sá pakki en ég er öll að komast á strik.
Það var frekar æðislegt veður eftir að Ellen og Davíð fóru, bongóblíða og hægt að sóla sig alveg helling. Ég tók auðvitað engan lit frekar en vanalega þrátt fyrir að leggja mig alla fram.
Við sóluðum okkur t.d. alveg hátt í 4 tíma á miðvikudaginn eftir að hafa farið með strákana í tónlistartíma í drop-ininu.
Tónlistartímarnir eru þannig að maður mætir með barnið og allir setjast í hring og syngja saman með hreyfingum og öllu. Birki leyst ekkert á þetta þannig að Bylgja fór bara fram að leika með hann. Ég, Birtingur og Ylfa fórum inn og settumst. Ég var svo heppin að fá sæti hliðina á kennaranum svo að það var mikil pressa á mér að standa mig. Þegar aðeins var liðið á tímann settist Birtingur í fangið á mömmu sinni, þannig að ég sat svolítið ein þarna hliðina á kennaranum. Ég hélt hins vegar áfram að syngja og gera hreyfingar til að valda kennaranum ekki vonbrigðum. Síðan allt í einu stoppar kennarinn að syngja og spyr mig: "Are you with anybody?" Mig hefur sjaldan liðið eins illa og ákvað að draga úr ákafa mínum í söngnum eftir það.
Ég er ekki búin að vera dugleg að fara mikið ein en ég lét reyna á það um daginn og labbaði alla leiðina í Soho, göngutúrinn minn varð þó brátt að búðarápi því þetta voru allt svo ótrúlega skemmtilegar búðir. Ég kom því ekki alveg tómhent heim. Eftir að hafa grandskoðað hverja búðina á fætur annarri var ég orðin svo áttavilt að ég hoppaði niður í næsta tube og fór heim.
Í fyrra dag létum við reyna á það í fyrsta skipti að ég færi ein með strákana út á leikvöll. Þeir voru báðir í beisli svo það var fínt en labbið tók heila eilífð og svo ruglaðist ég á leið og fór mikið lengri leið sem er bara alltof mikið fyrir svona litlar dúllur. Birkir og Birtingur voru bestu vinir alla leiðina svo að ansi oft þurfti ég að stoppa þegar þeir byrjuðu að hlægja saman. Fyrst byrjaði Birkir að gera eitthvað fyndið síðan hlógu þeir heil helling þangað til þeir fóru að knúsa hvorn annan og þá duttu þeir og svona gekk þetta aftur og aftur. Ég gat auðvitað ekki annað en hlegið með þeir því að þeir voru algjörar rúsínur.
Í gær fórum við út á leikvöll hérna alveg rétt fyrir ofan okkur og lentum í alveg úrhelli. Við létum það ekki stoppa okkur og héldum því áfram útiverunni. Á leiðinni heim löbbuðum við að Exmouth market, sem er ótrúlega krúttaraleg gata örlítið frá okkur. Við stoppuðum á kaffihúsi þar og fengum kakó og gulrótarköku áður en við röltum heim. Birtingur tók í fyrsta skipti hádegisblundinn sinn hjá okkur og gekk það bara vel, hann var að vísu ótrúlega spenntur yfir öllu dótinu hans Birkis svo hann vildi ekki alveg fara að sofa strax en Birkir var eins og klukka og fór inn í hebergi þegar klukkan var 5 mínútur í 12 og sagði góða nótt.
Pabbi hennar Bylgju og bróðir eru í heimsókn í London, svo að Bylgja fór með þá í skoðunarferð um hverfið og tók Birki með. Ég og Birtingur vorum því ein eftir heima að leika. Ég setti Dýrin í Hálsaskógi í gang fyrir Birting en skemmti mér sjálf konunglega yfir honum og söng með eins og enginn væri morgundagurinn.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
The Popemobile
20.9.2010 | 16:21
Það er búið að vera allt vitlaust hérna í London um helgina vegna þess að Páfinn rúllaði í heimsókn, fólk tók víst misvel í heimsóknina en sú gamla var rosa spennt fyrir honum. Þau voru víst mikið að hanga saman í Buckingham Palace þar sem páfinn þáði scones and a cup of tea. Ég og Ellen rétt misstum af honum í gær þar sem kallinn hafði verið að kasta kveðju á fólkið í Westminster Abbey. Vorum heldur betur svekktar og röltum því bara um svæðið og lékum túrista.
Áður en við fórum að eltast við páfann höfðum við farið á Camden Market sem er markaðstorg hérna í London (ákaflega vinsæll). Ég gerði góð kaup þar því ég náði að prútta heilmikið að mér fannst, allavega í eitt skipti um heil 2 pund.
Þegar við komum heim eftir páfaleitina fengum við okkur scones með comboi sem lagðist vel í fólkið. Ég held að Birkir sé að fara að taka mig í sátt en ég mátti alveg leika við hann heillengi í gær.
Í gærkvöldi fórum við síðan og hittum vin hennar Ellenar og fengum okkur að borða saman á Briklane, en það er gata þar sem indverjarnir í London hafa komið saman og hennt upp hverjum veitingastaðnum á fætur öðrum.
Maturinn var það sterkur að ég vissi ekki hvert ég ætlaði eftir fyrsta bitann, Ellen er meira að segja ennþá að jafna sig.
Í dag tókum við daginn snemma og þræddum búðirnar á Oxford Street. Davíð var ekki alveg nógu ánægður með afraksturinn því hann fékk aðeins einn bjór en verslaði alveg heilmikið á sjálfan sig. Ég mun vinna í úrlausn á þessu máli svo þetta komi ekki aftur fyrir. Ellen var einnig öflug í kaupgleðinni en þegar hún var orðin alveg örmagna og gat ekki meira hoppaði hún inn í næstu H&M búð og tók góða syrpu.
Núna er trioið vel sveitt og seðlaveskin miklu okkar orðin miklu léttari, þannig ég ætla að fara að gera eitthvað ákaflega Londonískt og henda mér í sturtu.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrsti í London baby
17.9.2010 | 11:54
Loksins er ég komin til London og í morgun er ég búin að vera að drekka í mig Londonískar matarvenjur og fékk mér Scones með einhverju agalega fancy comboi ofaná. Mér leist ekkert alltof vel á þetta í fyrstu en annað kom á daginn þegar ég bragðaði á þessu dýrindis comboi. Aftur á móti held ég að plön mín um að komast í heljarinnar gott form hérna úti muni renna út í sjóinn því að þetta scones combo lítur út fyrir að það muni tjaldi á lærunum á mér.
Ferðin hingað gekk frekar klakklaust fyrir sig fyrir utan skemmtilega klósettferð þar sem ég labbaði inn á mann í flugvélinni með allt niðrum sig í mestu makindum að kasta af sér þvagi. Hann hafði ekki látið sér nægja í þetta skiptið að lauma vininum út heldur þurfti hann bara að girða almennilega niðrum sig og var ég svo heppin að fá að sjá afraksturinn. Mér sýndist nú afturendinn á honum vera í ágætu standi þó að korter í viðbót á the stairmaster myndi ekki gera honum illt.
Við í minni sætaröð vorum afar fjölþjóðleg en ég var sessunautur með einu stykki indverja og einum lady gaga lover japana, en hann hafði mikið dálæti á söngkonunni. Ekki bætti úr að hafa svo skjannahvítt, rauðhært dýr á endanum. Við vorum eins og klippt út úr auglýsingu frá United Color Of Benetton.
Björk söngkona sat svo tveimur röðum fyrir framan mig í þessu líka fína hvíta tjaldi, hún hefur alltaf verið soddan trendsetter með fatavali sínu.
XOXO
LOVE TYRA
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)