Nýjir meðlimir

Hlutirnir hafa ekki beint verið að gerast á ljóshraða í Álftamýrinni að mati The Project Manager eða þar að segja þangað til í dag.

Fyrr í vikunni byrjuðu nefnilega tveir nýjir meðlimir íbúðabreytinga teymisins Ísbjarnar að gera klárt fyrir það að flísaleggja baðherbergið en áður en það hófst þurfti að steypa einn lítinn pall. Ástæða pallsins er sú að íbúarnir á neðri hæðinni tóku það ekki í mál að fá niðurfallið mitt sem loftskreytingu hjá sér (their loss). Ég og Drengurinn vorum þó ekki lengi að leysa það vandamál og þannig kom til pallurinn sem kom líka svona skemmtilega á óvart. Mér er samt farið að gruna að ég eigi eftir að bölva honum í framtíðinni þegar ég mun ná að reka tærnar í hann. Það er þó ekkert sem þykkir ullarsokkar geta ekki leyst

En aftur að nýju meðlimum íbúðabreytinga teymisins Ísbjarnar, þá hrisstu þeir aldeilis upp í hlutunum í gær og hófu að flísaleggja baðherbergið The Project Manager til mikillar ánægju. Eftir stuttu heimsókn í gær á framkvæmdastaðinn gat ég nú ekki annað en brosað til beggja eyrna því þetta var ljómandi fínt hjá þeim. Ég bjóst við að þeir myndu kannski ná að klára verkið fyrir næsta fimmtudag en afrakstur dagsins segir mér að þeir verði búnir um 5 leytið á mánudaginn sem flýtir mjög áætluðum innflutnings degi. The Project Manager ætlar þó ekki að gefa út neinar nánari upplýsingar um áætlaðan innflutningsdag nema það að I´ll be home for Christmas.

Image 

 

Image 1

 

Image 2 

 

Hér eru nokkrar myndir af baðherberginu eftir afrakstur vikunnar

 

XOXO

LOVE TYRA 


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband