Hunter stígvél

Mig hefur alltaf þótt gúmmístígvél vera afar hallærisleg og ótrúlega púkó, sérstaklega á fullorðnu fólki en þetta virðist hafa breyst eitthvað hjá mér því nú eru þau efst á óskalistanum. Þetta eru að vísu ekki bara einhver gúmmístígvél heldur alvöru Hunter stígvél svona eins og breska drottningin og Kate Moss eru að sporta. Hægt er að fá þessi stígvél í öllum mögulegum stærðum og gerðum, en mig lýst einna best á þessi sem voru hönnuð í sameiningu við Jimmy Choo. Bylgja á Hunter stígvél og þótt þau nái mér vel upp að hnjám þá finnst mér ég vera sjaldan eins lekker og þegar ég er í þeim. Þetta væru líka kostakaup þar sem þau virka afskaplega vel í íslensku ofsaveðri og endingartíminn er lengri en á sjálfri mér svo þau gætu vel gengið í gegnum margar kynslóðir. Það sem sannfærir mig ennþá meira í að ég eigi að fjárfesta í þeim er að það er hægt að kaupa þau heimasíðum Asos, Topshop og á Selfridges.

Hunter Wellies

jimmy-choo-wellies

641-10004-1436990979_PURPLE

Haldiði að ég verði ekki hugguleg í þessum á níræðisaldri úti í garði að dytta að blómabeðinu!

  3936025209_b7b1c92f51 
XOXO
LOVE TYRA

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

guð, ég sé þig svo í anda, eldgömul, dyttandi að blómabeðunum í svona stígvélum með svuntu og makkann bundinn aftur!!

Hugrún (IP-tala skráð) 26.5.2011 kl. 18:52

2 identicon

þú tækir þig mega vel út í svona! vona að þú takir þau með til manchester svo ég geti séð ;)

Erla perla (IP-tala skráð) 26.5.2011 kl. 19:29

3 identicon

Ekki spurning, skella sér á amk eitt par. Ef þetta tæmir budduna verðuru bara dugleg að baka með kaffinu í staðinn fyrir að fara í bakaríið ;O)

Fríða (IP-tala skráð) 27.5.2011 kl. 06:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband