Styttist óðum
23.5.2011 | 20:37
Síðastliðnar vikur hafa verið frekar tíðindalitlar hjá mér en það heldur betur dró til tíðinda þegar Heiðrún mætti til mín frá Aberdeen. Hún mætti galvösk til mín á fimmtudaginn og eyddi helginni í faðmi uppáhalds London vinkonu sinnar. Stelpunni var auðvitað boðið besta gistiplássið í London sem er að sjálfsögðu á uppblásinni dýnu frá Ylfu & Jóa á gólfinu hjá mér. Henni líkaði gistingin svo vel að hún ætlar að láta sjá sig hérna hjá mér aftur næsta fimmtudag eftir að hafa spókað sig örlítið í París.
Á föstudagskvöldið fórum við út að borða með Þórdísi á Dim-t þar sem ég kom öllum í opna skjöldu og pantaði mér fisk (nú er ég viss um að foreldrar mínir felli tár þar sem ég hef gert þeim mikinn grikk síðastliðin 20 ár með því harðneita að borða fisk, þessi langa barátta er nú á enda).
Laugardagurinn byrjaði alveg einstaklega illa þar sem ég horfði á undanúrslitin í American Idol. Sú sem ég hélt með er nú dottin út og er því Idolið dautt í mínum augum. Það heldur betur lifnaði yfir deginum þegar ég komst til heimkynna minna á Oxford Street. Við eyddum deginum í að þræða þessa þekktu verslunargötu búð fyrir búð. Við enduðum svo í fiestu á 66 King's Cross Road en við erum í viðræðum viðpressuna þessa dagana til að fá dálk undir þessa fiestu því við erum það góð í henni. Allt frá kryddinu á kjúllann yfir í guacamólíið er heimagert, svo grand erum við orðin á því í þessari fajitas snilld.
Á sunnudaginn duttum við svo bara í nokkra kokteila og gerðum okkur afskaplega glaðan dag.
Nú styttist svo óðum í að foreldrar mínir komi í heimsókn en svo virðist sem þeim sé ekki ætlað að komast hingað því stöðugt er eitthvað að koma upp á. Fyrst eftir að þau keyptu miðana til mín ætluðu flugmenn í verkfall á sama degi og þau eiga flug út en sem betur fer leystist úr því og nú liggjum við á bæn um að þetta blessaða gos muni ekki trufla flug á tilsettum degi. Ef allt fer á versta veg og þau munu ekki komast út þá ætla ég að pakka saman dótinu mínu og synda heim.
Birtingur er byrjaður á leikskóla tvisvar í viku svo það er ansi rólegt hjá mér þá daga. Það er nú samt þvílík gleði hjá þessum tveimur drengjum þegar þeir hittast sérstaklega þegar allt leikur í lyndi á milli þeirra. Þetta samband þeirra er afskaplega stormasamt á köflum, en þegar það lægir þá verða þeir alveg hreint mestu mátar.
XOXO
LOVE TYRA
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.