Sumarið komið

Ég er frekar kvefuð þessa dagana og ég var ekki búin að átta mig á því að ég finn ekki neina lykt og boy ó boy fékk ég það í bakið í dag.
Ylfa kom að sækja Birting og sagði við mig að annar hvor þeirra væri nú búin að gera númer 2. Síðan förum við að tala saman og þá tekur hún eftir því að sokkabuxurnar hans Birkis voru orðnar blautar. Við höldum áfram að tala saman en hættum snögglega þegar við tökum báðar eftir því að Birkir er að nudda sér upp við vegginn og í leiðinni að dreifa innihaldi bleyjunnar á hann. Það góða við þetta allt saman er að ég fann enga lykt.

Seinna um daginn kem ég upp í stofu og sé að Bylgja er á hinum enda línunnar í skype viðtali og Erik og Birkir inni á baði. Ég sest í makindum mínum á gólfið fyrir framan tölvuna og fer að segja henni frá sögunni hérna á undan en átta mig allt í einu á því að gólfið er allt blautt. Birkir hafði þá pissað á sig og ég fann að sjálfsögðu enga lykt og settist bara beint í hlandið.

Líf au-pair stúlkunnar er nú samt að sjálfsögðu oftast dans á rósum. Ég hef samt ákveðið að fresta barneignum fram yfir 30 og vera með að minnsta kosti tvær barnfóstrur, eina night nanny og eina day.

Veðrið í síðustu viku var alveg glimrandi gott og ég er ekki frá því ginger kid-ið hafi náð sér í smá lit í andlitið og að sjálfsögðu góðan brunablett á bakið. Á föstudaginn síðasta var ég bara ein með Birki þannig við lögðum afstað í lestarferð snemma þann morguninn. Ferðinni var heitið í Regent garðinn til að sóla okkur. Við tókum með okkur nesti og teppi og höfðum það huggulegt í grasinu með banana í annari og djús í hinni afar sátt með lífið og tilveruna. Síðan hallaði Birkir sér upp úr hádegi og ég lá og las bók á meðan með þeim afleiðingum að ég brann á bakinu.

IMG_0314

Notið sólarvörn krakkar!!!

IMG_0377

Birkir neitaði að vera í fötum á föstudagskvöldið og dansaði út í glugga nakinn fyrir nágranna okkar.

XOXO LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vertu fegin að músin veiddist ekki í gildruna. Það er ógeð! Góða ferð til Múnchen, þú átt eftir að rúlla þessu upp eins og öðru :O)

Fríða (IP-tala skráð) 8.4.2011 kl. 09:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband