I Love You & OMG

Ég ákvað að bæta orðaforða Birkis örlítið og kenndi honum að segja ó my god og I love you. Það tók hann smá tíma að ná tökum á ó my god en ég þurfti bara að segja I love you nokkrum sinnum á meðan bleygjuskipti fóru fram og þá var hann búinn að master I LOVE YOU. Fyrr í vetur var ég eitthvað að reyna að kenna honum að segja Justin Bieber en þar sem Bieberinn verður pottþétt dottinn í mútur þegar Birkir loksins getur gert sér grein fyrir því hver hann er hefur það alveg dottið uppfyrir.

Helgin er búin að vera ansi róleg hjá okkur á King's Cross Road fyrir utan smá uppákomu þegar við náðum að læsa okkur öll úti. Við vorum búin að taka okkur öll til og ætluðum í Regent en þar sem við uppgötvuðum að enginn okkar væri með húslykla þegar við vorum öll komin niður varð Erik að vera eftir og bíða eftir lyklasmiðnum. Ég, Bylgja og Birkir röltum út á róló og kíktum aðeins á kaffihús á meðan við biðum eftir Erik. Það að láta lyklasmiðinn koma og opna íbúðina kostaði góð 95 pund  eða 17.836 krónur og 25 aura. Núna munum við öll ganga með lykla um hálsinn og Birkir líka.

Þar sem ég hef átt að vera að vinna verkefnið mitt í dag hef ég náð að áorka öllu öðru sem ég er vön að setja á hakann. Ég fór meðal annars í 90 mínútna yoga tíma, skellti mér síðan á skíðatækið í ræktinni, fór því næst í það langa gufu að ég var lögst útaf og byrjuð að dotta og tók síðan smá göngutúr um Angel. Það að ég fari í ræktina er ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi þar sem ég næ alltaf að réttlæta fyrir sjálfri mér eftir daginn að ég sé svo þreytt og jú ég hafi nú hlaupið aðeins með strákunum. Eitthvað varð ég þó að taka mig á í þessum málum þar sem einkaþjálfari úr ræktinni hringdi í mig á fimmtudaginn og spurði hvort ég vildi ekki koma í Health MOT. Ekki gat ég staðist þessa super hressu rödd hinum megin á línunni og lét fallast. Ég er mjög spennt að sjá hvað mun koma út úr þessu MOT þar sem ég er búin að hafa það notalegt uppi í rúmi frá jólum með kók í æð.

Verkefnið í kvöldnámskeiðinu á að vera tilbúið fyrir lokatímann sem er á þriðjudaginn. Ég fékk nána lýsingu af target consumer og átti að koma með einhverja hugmynd til að selja þeim hóp. Target hópurinn minn í grófum dráttum er írönsk kona á aldursbilinu 25 - 35 ára og á sand af seðlum og elskar alla vestræna tísku. Ég ákvað að opna í þykjustunni búð á Regent street með íslenskri hönnun. Hönnuðurirnir sem ég valdi voru STEINUNN, Andersen & Lauth, Kalda, Kron by Kron Kron og Royal Extreme. Íslensk hönnun er í mikilli uppsveiflu og mig fannst alveg ótrúlegt hvað hún er seld víða. Það er til dæmis hægt að kaupa Kron skóna á ASOS og Alexa Chung hefur sést í Andersen & Lauth kjól. Fyrir þá sem ekki vita þá Alexa Chung tísku átrúnaðargoð Breta um þessar mundir en þeir halda varla vatni yfir þessari píu.

Ég prufukeyrði nýju súkkulaði uppskriftabókina mína í gærkvöldi og bakaði Brownie ostaköku með ferskum hindberjum. Hún var ekkert lítið delish og get ég ekki beðið eftir að fá að prófa eitthvað annað úr henni. Ylfa & Jói & Birtingur voru svo frábær að gefa mér hana í afmælisgjöf ásamt súkkulaði og heitir hún Ultimate Chocolate Recipes frá Green & Black súkkulaði meistaranum.

 

súkkulaði
Uppskriftabókin
DSC00858
Áður en hún fór í ofninn
DSC00859
DSC00861
Tadahhhh!!!!
XOXO LOVE TYRA

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvernig smakkaðist svo kakan?

Ágústa (IP-tala skráð) 6.3.2011 kl. 22:05

2 identicon

ó mæ god hún var svo góð!

:)

Bylgja (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 12:19

3 identicon

Hlakka til þegar þú kemur heim og ferð að baka fyrir okkur pabba þinn.

Inger Agustsdottir (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 16:01

4 identicon

Já, þið munuð lenda í mikilli tilraunastarfsemi :D

Kristín Helga (IP-tala skráð) 7.3.2011 kl. 17:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband