Hiksti
22.2.2011 | 16:08
Strákunum finnst ekkert lítið skemmtilegt þegar ég fæ hiksta sem er ágætt því þetta er mjög ódýr skemmtun. Þeir hlægja og hlægja og ýmist biðja um meira eða herma eftir mér hiksta. Ahhhh það er svo einfalt að vera lítill.
Birkir er orðinn svo sáttur með tilvist mína á heimilinu að mér er fagnað þegar ég vakna á morgnanna. Rútínan er svona: Ég vakna, Birkir spjallar við mig, síðan fer ég á klósettið og hann talar við mig í gegnum hurðina á meðan eða kemur með mér, því næst borðar hann með mér morgunmatinn minn.
Hann er orðinn það góður vinur minn að nú vill hann hanga með mér eftir að foreldrar hans eru komnir heim, það gæti reyndar spilað inn í að það er dýna á gólfinu hjá mér sem sumum finnst geðveikt að hoppa á. Ég ætla að trúa því að þetta sé hins vegar útaf því að hann sé búinn að átta sig á því hversu skemmtileg ég er.
Í gær prufuðum við að mála og tókst það rosalega vel hjá Birtingi en hann vill núna bara mála. Hann var mjög pro í þessu öllu saman, skipti reglulega um liti og leyfði listaandanum að koma yfir sig. Birkir var ekki alveg á sama máli en eftir að ég spennti hann í stólinn sinn og rétti honum pensilinn horfði hann bara á mig eins og ég hefði beðið hann um að finna upp hjólið. Hann fékk því bara að fara aftur að leika og þótti það ekkert leiðinlegt þar sem við vorum með gesti. Þórdís og Kristján voru nefnilega í heimsókn og fengu að leika með okkur en það er vetrarfrí í skólanum hans Kristjáns þessa vikuna.
Ég og Þórdís fórum rosa fínt út að borða á föstudagskvöldið á stað sem heitir Dim t. Við vorum ansi grand á því og fengum okkur þriggja rétta og kokteil. Í forrétt var eitthvað sem heitir Dim Sum og er að mínu mati eitthvað sem líkist fylltum koddum og í okkar tilfelli voru þeir fylltir með spicy grænmeti og kjúkling, kasjúhnetum og kóríander.Þetta var alveg gourme grande. Ég og Þórds héldum í fyrstu að við værum orðnar það alheimsvæddar að við þyrftum ekki hnífapör og sögðum við þjóninn að prjónarnir væri nóg, fljótlega fengum við þó bakþanka og báðum um hnífapörin. Held að við verðum að skrá okkur í eitthvað prjóna work shop áður en við förum aftur að afþakka hnífapör.
Annars hef ég það bara mjög fínt í London og vonast eftir sem flestum heimsóknum í sumar frá öllum, það er fínasta hostel og hótel í sömu götu og ég bý :D
XOXO LOVE TYRA
Athugasemdir
haha... þú ert æði.... hlakka til að mæta á dim t og borða bara með prjónum..... verðum að æfa okkur.. mæta oft og fá okkur súkkulaðikökuna næst... :D
p.s það er pottþétt ekki dýnan.......
Þórdís.. (IP-tala skráð) 22.2.2011 kl. 21:12
Hahaha góð rútína! Ekkert frí þegar maður er svona skemmtilegur, pottþétt ekki dýnan ;)
Birtingur vaknar núna á morgnana og biður um að fá að mála! Svo núna er aðal að teikna eftir að við komum heim, svona til að þróa enn frekar þessa listrænu hæfileika.
p.s. fæ vatn í munnin við að lesa um matinn *
Ylfa (IP-tala skráð) 23.2.2011 kl. 10:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.