Líbanon prinsessan og Póllands erfinginn
1.2.2011 | 23:59
Ég ákvað að undirbúa mig aðeins fyrir tímann í Fashion Marketing í dag og fjárfesti því í Elle blaði ásamt því að glugga í gamlar markaðsfræðiglósur. Lesturinn af Elle nýttist mér mjög vel og gat ég betur skilið skoðanir Líbanon prinsessunnar á öllum þessum hönnuðum og fatamerkjum. Að lesa Elle er ekki leiðinlegur lestur svo núna mun ég bara skoða tískublöð fyrir hvern tíma.
Stelpurnar sem eru með mér í þessum tímum koma víða en eiga þó það sameiginlegt að vera svona þrusu góðar í ensku, nema kannski þessi frá Suður-Kóreu. Þessi frá Suður-Kóreu er samt held ég alveg rosalega góð í ensku, hún er bara með svo mikinn hreim að það verður voðalega erfitt að skilja hana. Ég hef stressast öll upp hingað til þegar ég hef átt að tala og tungan á mér hefur alltaf tvöfaldast á notime. Ég hugsa að ég fari bara að brosa og kinka meira kolli til að sýnast virk í umræðunum. Líbanon prinsessan talar einnig fluently ensku en samt er hún alltaf að afsaka hvað hún sé léleg í ensku og hendir í kjölfarið nokkrum frönskum orðum inn í eftir á og segist ekki vita þau á ensku.
Já, Líbanon prinsessan er alveg ágætis stúlkukind nema þegar hún byrjar að segja frá því þegar hún var að kaupa Prada/Chanel hitt og þetta, af því hún byrjar alltaf á því að segja okkur að hún sé ekki að reyna að monta sig af því að hún eigi mikið af peningum. Í dag fóru síðan Líbanon prinsessan og Póllands erfinginn (hef gefið mér að sú pía sé efnuð miðað við samræður hennar við Líbanon prinsessuna í dag) í hróka samræðum í miðjum tímanum um að Hérmes og Chanel væru nú bara einu luxury brandin eftir í dag. Þetta fengu þær út vegna þess að þessi fyrirtæki veittu þjónustu eins og þær væru að fara á veitingahús (örugglega byggt á persónulegri reynslu) og hefði ennþá upprunalegu gæðin og hráefnin. Þær voru einnig sammála um að Marc Jacobs hefði nú bara eyðilagt Louis Vuitton og það merki væri nú bara orðið ekki neitt eða eins og Líbanon prinsessan segir svo oft: Disgusting! Síðan til að setja punktinn yfir i-ið á þessum mikilfenglegu samræðum henti Líbanon prinsessan inn sögu af henni og pabba hennar í Prada.
Á þessum tímapunkti þagði almúgurinn þ.e.a.s. restin af stelpunum.
Mér var skapi næst að öskra eitthvað út í loftið til að halda uppi heiðri annarra fatabúða og það helst á frönsku upp á að Líbanon prinsessan myndi skilja mig.
Þó að mig hafi sárnað mjög allt þetta diss á Louis Vuitton og Marc Jacobs þurfti nú lítið annað en Kit Kat og kók til að hressa mig við.
XOXO
LOVE TYRA
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.