Makalaus

Þórdís lánaði mér líka þessar miklu heimsbókmenntir um daginn og er ég búin að sitja límd yfir bókinni síðustu daga og átt erfitt með að slíta mig frá henni. Þessi snilldar bók er eftir Þorbjörgu Öldu Marínósdóttur og heitir Makalaus. Bókin gaf mér að vísu miklar ranghugmyndir um lífið, t.d. að það að segja woop woop vekji lukku og að rauðvíns/hvítvínsdrykkja sé algjört must. Þrátt fyrir þessar ranghugmyndir ætla ég líka lesa næstu bók eftir hana en hún heitir Dömusiðir.

Í vikunni var Birkir ekki alveg að haga sér vel og ég var orðin ágætlega pirruð. Eftir að hafa beðið hann um hætta nokkrum sinnum, missti ég síðan út úr mér: Ekki láta eins og þú sért tveggja ára!!! Ég náttúrulega dó úr hlátri af sjálfri mér þar sem drengurinn er 2 ára. Vikan var annars frekar róleg þar sem Birtingur var veikur og kom ekki alla vikuna, honum var að vísu sárt saknað. Þetta gaf mér tíma til að safna upp orku þar sem þeir eru ótrúlega duglegir þessa dagana að espa hvorn annan upp í eltingaleiki og búa til þvílíkan hávaða. Þeir voru samt alveg kostulegir allan föstudaginn því þeir höfðu saknað hvors annars svo mikið að þeir föðmuðust og kysstust í gríð og erg.

Ég og Þórdís fundum frábæran pelsasala í Camden á laugardaginn. Þessi kona er með mikið úrval af pelsum úr kanínufeldi á rosalega sanngjörnu verði. Flestir voru á 85 pund en það er svipað verð og maður gæti keypt fake pels í búðum eins og River Island ef ekki ódýrara. Sölukonan þurfti ekki að gera mikið til að selja okkur ágæti pelsa, en þar sem það er rosalega kalt núna og pelsar eru heitir var hún kominn með okkur á sitt band mjög fljótt. Núna þarf ég bara að leggjast á bæn og vona að einhver sem ætlar að gefa mér afmælisgjöf heyri. BTW, ég á afmæli 26. febrúar og allir eru velkomnir í kökur og kaffi upp úr 3 sama dag.
Það er meira í Camden en pelsabásinn en þar er líka að finna rosalega góðan matarmarkað þar sem seldar eru heimsins bestu súkkulaðibitakökur og reyndar líka alveg allskonar annar matur en þessar kökur standa án efa upp úr. Mæli eindregið með þessum markaði fyrir þá sem eru í London hugleiðingum í kringum afmælisdaginn minn.

Í morgun skellti ég mér í Pilates tíma og það var rosalega skemmtilegt þar sem kennarinn að mínu mati var ótrúlega fyndinn. Hann var að henda inn setningum á borð við:
You are not going to be like Wonder woman so relax a little
Go on touch your bottom, it´s Sunday
Pretend someone hot is watching you, like Brad Pitt or no he´s old
Allavega hló ég oft mjög mikið af honum.

Þar sem Erik og Bylgja eru svo skemmtileg hef ég ákveðið að vera hérna fram í lok júlí og koma bara sterk inn (og kannski smá brún) í byrjun ágúst í brúðkaupinu hjá Ellen og Davíð. Ásamt því að hafa kynnt mér fyrir Stir fry, Sjöu og heimsins besta kaffihúsi, Starbucks, eru þau bara ekki svo slæm. Skemmir heldur ekki að við séum að fara á klikkaða tónleika 30.júní woop woop! Ég sé því fram á ákaflega skemmtilegt sumar í faðmi London fjölskyldunnar.


erikbylgja

Henti inn mynd af þessum lukkulegu hjónum til að demonstrate-a hversu skemmtileg þau eru.

XOXO
LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bylgja, Erik og Birkir

Thank you for warm words into my garden!

Bylgja, Erik og Birkir, 30.1.2011 kl. 20:40

2 identicon

Ég og Helga ætlum á Katy Perry tónleika þann 26.febrúar til heiðurs þér :D

Hugrún (IP-tala skráð) 30.1.2011 kl. 21:35

3 identicon

Alltaf gaman að lesa bloggin þín :D og sjáumst á föstudaginn :D

Ágústa (IP-tala skráð) 1.2.2011 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband