Nýir danstaktar
11.1.2011 | 23:32
Ég hef loksins snúið aftur til London town öllum til mikillar gleði. Ég var svo heppin að fljúga út með Björgólfi eldri og frú, svo við gátum nú rætt um kreppuna, fjármagnstekjuskatt og fleira í þeim dúr. Svo fórum við öll í kokteilkvöld hjá gömlu og skiptumst á að máta kórónunar hennar. Það var blast.
Á mánudeginum tók svo alvaran við.
Fyrsti dagurinn hjá okkur þremenningunum gekk ekkert alltof. Birkir mótmælti því allan morguninn að vera hjá mér en eftir hádegislúrinn var hann eins og nýr. Birtingi fannst þetta lítið mál fyrir utan það, þegar hann hentist niður stigann en sem betur fer slasaðist hann ekkert, fékk þó smá skrámu á nefið. Ég aftur á móti hjartsláttartruflanir og þjáðist af oföndun í dálítinn tíma. Birtingur var fljótur að jafna sig eftir flugið og var ekki lengi að vippa sér aftur í leik með vini sínum. Ég þurfti hins vegar örlítið lengri tíma í það að jafna mig og fullvissa mig um að hann væri hvorki með innvortis blæðingar né alvarlega höfuðáverka.
Næsti dagur gekk miklu betur og allir voru syngjandi glaðir í lok dags. Ég og litli kaffihúsaunnandinn byrjuðum daginn á kaffihúsi og deildum rótsterkum kakóbolla og ljúffengri Skinny Blueberry Muffin. Það kætti litla kaffihúsaunnandann ógurlega. Birtingur mætti síðan galvaskur til okkar um 11 leytið og þá hófst endalaust stuð.
Birkir sýndi nýja danstakta í dag og ég sé fram á að þeir muni þróast hratt á næstu vikum.
Athugasemdir
Hahaha ég elska hláturinn þinn þarna í lok videosins. Gott að þið félagarnir skemmtið ykkur vel :D
Hugrún (IP-tala skráð) 11.1.2011 kl. 23:43
Birkir er soddan heimsborgari ;)
Ellen (IP-tala skráð) 13.1.2011 kl. 14:44
krutt þegar hann hoppar á rassinn haha :D
Elva Björk (IP-tala skráð) 14.1.2011 kl. 18:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.