Jólabarnið
3.12.2010 | 18:15
Ég stórslasaði Birting um daginn, hann sat í fanginu á mér í stiganum og stakk sér fram, með þeim afleiðingum að út úr enninu á honum braust fram líka þetta rosalega horn. Ég þurfti áfallahjálp þegar ég sá drenginn breytast í einhyrning fyrir framan mig og hringdi í mömmu. Gerði mamma mér þá þann óleik að svara ekki símanum, loks þegar ég var alveg að missa meðvitund af stressi svaraði hún og fullvissaði mig um að það væri í fínu lagi með hann. Ég er ekki viss um að ég þurfi að passa hann aftur í framtíðinni.
Um helgina keyrðum við jólagleðina í gang. Ég, Birtingur, Birkir, Ylfa og Jói fórum út í Brunswick á föstudaginn og sáum þegar það var kveikt á jólaljósunum. Við fengum heitt kakó og súkkulaðibitaköku til að hita okkur upp því það var ótrúlega kalt. Síðan voru einhverjir söngvarar sem komu fram sem voru rosalega lélegir en við vorum greinilega ein um það því aðrir héldu ekki vatni yfir þeim. Kynnirinn sem sá um að stjórna þessu skemmtanahaldi var ekki að verri endanum, minnti einna helst á bróður Geira á Goldfingurm klæddur líka í þennan agalega smart skósíða hlébarða kápu. Þó að skemmtiatriðin hafi ekki verið upp á 10 var mikill jólaandi yfir þessu öllu saman.
Ég var búinn að ákveða að taka til í herberginu mínu á laugardaginn, það tókst líka svona rosalega vel að allur dagurinn fór í það. Ég get ekki sagt að það sé orðið hreint í herberginu en ég náði þó að búa til tossalista yfir það að taka til í herberginu mínu. Jólaandinn var orðinn þvílíkur hjá mér seinnipart laugardagsins að ég henti í tvær sortir af smákökum. Þórdís kom og gisti hjá mér af því að henni var boðið í aðventusunnudagsjólabrunchinn okkar á sunnudagsmorguninn.
Við fórum í diddi dance á fimmtudaginn og vöktum ekki mikla lukka meðal foreldranna. Strákarnir voru rosalega hressir og hlupu út um allt og fóru bakvið gluggatjöldin að fela sig. Í fyrstu var ég eitthvað að reyna að fá þá til að gera æfingarnar en ákvað síðan að þeir mættu alveg hlaupa eins og vitleysingar út um allt og leika sér. Eftir smá stund voru þeir búnir að lokka alla hina krakkana með sér í fíflalætin, hlaupandi út um allt. Þetta vakti ekki mikla gleði hjá foreldrum hinna barnanna þar sem þau voru ein eftir að gera æfingarnar. Ég beið bara eftir því að okkur yrði vísað á dyr.
Birkir syngur orðið með öllum lögum og ef þau eru útlensk og hann nær ekki alveg textanum þá allavega reynir hann að tóna með. Birtingur hefur þótt skemmtilegra að hlusta bara á þegar ég syng fyrir hann en núna er hann kominn með alveg glænýtt lag eftir sjálfan sig og raular það allan daginn. Það er tralllalllallallallalalalalallala og restin er í svipuðum gír.
Strákarnir fóru í bað áðan og það var ekkert smá gaman eins og er að sjá á þessu video.
XOXO
LOVE TYRA
Athugasemdir
Jii hvað þeir eru sætir! :D
Tinna (IP-tala skráð) 4.12.2010 kl. 17:28
Æji það er svo gaman að lesa bloggin þín! .. og vá hvað þeir eru sætir, þetta minnir mig á svona barnahlátursmyndband á youtube!
Hlakka til að fá þig í jólafrí :D
Erla Rún (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 22:14
Þeir eru sætir og þeir dýrka þig þvílík ;) En þú veist alveg að þú mátt hringja í mömmu hans ef eitthvað bjátar á, hún lofar að fá ekki panik ;)
Ylfa (IP-tala skráð) 6.12.2010 kl. 12:37
Þetta myndband kom mér í svo gott skap sko! Þeir eru nú aðeins of miklar dúllur :) Koma þeir ekki bara með þér heim um jólinn
Edda Björg (IP-tala skráð) 7.12.2010 kl. 20:20
Átti að vera eitt n í þessu :D haha
Edda (IP-tala skráð) 7.12.2010 kl. 20:21
Oh svo gaman að lesa bloggið þitt :) yndislegir pjakkar, vil fá fleiri svona myndbönd, þetta bræðir mann alveg
Ellen (IP-tala skráð) 9.12.2010 kl. 11:22
Gaman að lesa hvað drífur á daga Londonpíunnar... Sjáumst um jólin!
Fríða (IP-tala skráð) 16.12.2010 kl. 07:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.