Piparkökugleði

Það lang besta við að vera au-pair er að ég þarf aldrei að hafa áhyggjur af því að leiðast á klósettinu, því ég er alltaf með live show fyrir framan mig. Það er næstum því eins og þeim finnist það vera algjört must að sleppa öllu því sem þeir eru að gera, bara til að geta örugglega verið með mér á klósettinu.

Í gærkvöldi fór ég að passa hjá íslenskum manni og franskri konu, þau eiga þrjú rosalega sæt börn og búa hérna í nágrenninu. Maðurinn hann Halli hafði látið mig frá frekar nákvæmar upplýsingar í gegnum sms hvernig ég ætti að rata þangað en bað mig endilega að hringja í hann ef ég væri ekki alveg viss. Ég hef alltaf getað ratað mjög vel þannig að ég var nokkuð viss um að þetta yrði nú ekkert mál. Ég fann þetta líka einn, tveir og þrír en átti eitthvað erfitt með að komast inn á svæðið því að það var stórt hlið og afar einkennileg bjalla sem ég botnaði hvorki upp né niður í. Mér til mikillar ánægju var akkúrat einn búandi að koma heim til sín og opnaði fyrir mér. Ég var ekki lengi að grípa tækifærið og smeygði mér með henni inn. Því næst tók ég upp símann og hringdi í Halla. Hann var afar undrandi að ég hefði ratað þangað í fyrsta skipti og fór að segja mér hvert ég færi næst. Ég botnaði ekkert í þessum upplýsingum sem hann dældi í mig þarna í gegnum símann. Fljótlega spurði hann mig þó hvaða leið ég hafði farið og komst að því að ég var á kolvitlausum stað en mjög nálægt. Ég snéri þá við og hélt til baka að hliðinu, en þetta blessaða hlið vildi hvergi gefa sig svo ég sat þarna pikkföst. Eftir 10 mínútur af vægu taugáfalli kom þó loksins einhver annar búandi og ég komst út. Eftir það var leiðin greið.

Við erum að taka forskot á jólasæluna hérna á King's og gæðum okkur á úrvals íslenskum piparkökum í takt við Hjálma. Stefán var svo yndislegur að senda piparkökur, Hjálmar disk, People og Séð og Heyrt. Það er rosalega erfitt að komast yfir amerísk slúðurblöð hérna en eftir dauðaleit hef ég fundið einn blaðasala upp í Angel sem virðist vera á sömu blaðsíðu og ég að kjósa þau amerísku yfir þau bresku.

XOXO

LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Piparkökurnar eru reyndar sænskar...  en listaverkin á þeim eru alíslensk!

Stefán (IP-tala skráð) 18.11.2010 kl. 18:36

2 identicon

Rosalega áttu góðan mann :) knúúúús

Ellen (IP-tala skráð) 19.11.2010 kl. 09:17

3 identicon

Er grey Stefán bara í fullri vinnu að endasendast um Reykjavík og finna dót til að senda þér út? Ekki amaleg þjónusta! Annars finnst mér þetta með klósettið svoldið skemmtilegt... greinilega innihaldsríkt líf sem þeir lifa fyrst að þetta er toppurinn á deginum :)

Hugrún (IP-tala skráð) 21.11.2010 kl. 13:57

4 identicon

Dugleg ertu Kristín. Alltaf að fara út fyrir "comfort sónið". Heppin ertu að hafa Stefán að senda þér hluti. Kim er á Íslandi núna og hann verður sko sendur í Bónus að versla ;O)

Knús á þig

Fríða frænka (IP-tala skráð) 24.11.2010 kl. 07:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband