Supermodels

Ég og Bylgja fengum að vera supermodels í einn dag en það varði auðvitað bara einn dag og kúkableyjurnar tóku líka svona vel á móti mér daginn eftir. Bylgja bauð mér í förðun, greiðslu, mini manicure og myndatöku á The Face London þar síðasta fimmtudag og það var klárlega ekki leiðinlegt.
Fyrst fengum við að velja greiðslu og förðun af myndum, ég ákvað bara go big og lét vaða í þvílíka greiðslu. Þegar greiðslan fór að taka á sig mynd hvarf ánægjusvipurinn eins og dökk fyrir sólu. Ómáluð með þetta ferlíki á hausnum, þetta var ekki að stefna í rétta átt. Ég vildi auðvitað sýna Tyra Banks að ég væri enginn aumingji og grét því ekki eins og hinar stelpurnar. Loks þegar það var búið að henda á mig andliti og auka augnhárum, leit ég bara alls ekki svo illa út. Eftir það tók við mega photoshoot með einhverjum gaur sem á að hafa myndað Orlando Bloom, þannig reyndi allavega konan að selja okkur fleiri myndir. Eftir daginn vorum við örmagna, mjög erfitt að vera módel, þannig við fórum heim og fengum okkur Shepard's Pie og mikið af Kit Katti.

Um seinustu helgi fórum við í sumarbústað í Helhoughton en bærinn er það lítill að það er bara ein gata sem heitir The Street. Bærinn minnti mig ótrúlega á litla bæinn sem Kate Winslet heimsótti í myndinni The Holiday (note to self googla hvar The Holiday var tekinn upp). Þetta var allt saman voðalega English country side legt þarna í sveitinni. Nú við fjölskyldan gerðum bretum þann gikkinn að leigja okkur bíl. Ég hélt ég ætlaði að deyja fyrst þegar við lögðum af stað frá flugvellinnum, tókum nefnilega tubið þangað til að sækja bílinn, og bað ákaft til Guðs og fór með Maríubænir. Þegar ég var svo alveg að fá taugaáfall af stressi komumst við á áfangastað. Þessi huggulegi bústaður sem við vorum svo heppin að fá lánaðan, virtist þó hafa verið tvíbókaður því að í húsinu var kröggt af kóngulóm, ýmist dauðar eða lifandi.
Eftir þessa löngu keyrslu í húsið var ég örmagna af þreytu og hugsaði nú gott til glóðarinnar að geta skriðið upp í rúm. Þá varð ég fyrir þessari líka life-changing momenti að ég sá þessa HUGES könguló í mestu ró á gólfinu hjá mér, hún var að vísu dauð en það er allt annar handleggur, og ég varð að kalla á Erik til að taka hana, aðrar 15 maríubænir voru beðnar og eftir að hafa náð að róa sjálfan mig niður með jafnri öndun sem ég hef lært  í Yoga tókst mér að sofna.

Daginn eftir tókum við rúnt um nærliggjandi bæi, kíktum á sjóinn og komum okkur upp nammi birgðum fyrir kvöldið. Þetta var laugardagskvöld og ekkert annað í boði nema að horfa á besta þátt í heimi, X-factor. Go team Aiden! (update: hann datt út í kvöld)

Í vikunni er ég búin að vera dugleg að mæta í ræktina, sérstaklega Yoga til að geta náð inner peace. Á fimmtudaginn mætti ég í yoga og kennarinn var indverji. Þetta verður ekki meira alvöru hugsaði ég með mér. Fólk er að ferðast heiminn á enda til að komast til Indlands í Yoga hjá einhverjum gúrúum og ég fæ þetta bara beint í æð mitt inn í miðri London. Aftur á móti reyndist mér erfiðara að skilja karlgreyið, því hann var með þennan líka rosalega hreim.

Annars ákvað ég að henda inn í einu myndbandi frá grimma dance sessioninu okkar síðasta föstudag.

 

 

 

XOXO LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

vá hvað þeir eru ógeðslega sætir!

Maður getur bara næstum gleymt frekjuköstunum :)

Bylgja (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 10:32

2 identicon

Ég get ekki hætt að horfa á þetta myndband... þeir eru svo ofboðslega sætir :)

Ellen (IP-tala skráð) 15.11.2010 kl. 11:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband