Halloween

Jeijjj, Birkir er farinn að segja nafnið mitt. Ég er mjög stolt af honum, núna er ég búin að kenna honum nafnið mitt og að klessa hann. Framtíð þessa barns er gjörsamlega bjargað. Þetta var tvísýnt á tímum.

Um helgina fór ég, Þórdís, Aldís og Diljá á Halloween djamm. Halloween er alvöru hérna, það voru margir úti á sunnudaginn trick or treating og á laugardagskvöldinu voru rosalega margir í búningum. Sumar stelpur hafa reyndar eitthvað misskilið þennan dag og ákveðið að fækka fötum frekar en að klæðasta búningum. Við mættum til dæmis einni dömu sem var ekki að selja sig, á netabolnum einum saman, þannig að frænkunum var frekar kalt.

Indverjar halda að rauðhærðir séu að deyja út þannig að á laugardagskvöldið vildu þeir ólmir taka myndir af mér og Þórdísi. Ég reyndi að rukka fyrir myndirnar, einungis 2 pund eða 357 krónur og 88 aura en þá sögðu þeir bara að ég væri pricy girl. 

Ég er farin að hafa smá áhyggjur að ég eigi eftir á fá menningarsjokk þegar ég kem heim og fer að umgangast fólk á mínum aldri. Ég hlusta svo mikið á barnatónlist og les bara sögur um Einar Áskel eða Thomas the tank engine að um daginn gat ég ekki sofnað af því að ég var með áslaug í efnalaug á heilanum sem er af þeim kostulega disk Lög unga fólksins.

XOXO
LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af menningarsjokkinu baby,  við tröppum þig bara rólega niður af barnaefninu með því að umgangast systkinin mín :)

Stefán (IP-tala skráð) 9.11.2010 kl. 19:00

2 identicon

Ég vil líka benda á að það var ég sem kenndi Birki að kless'ann!

Stefán (IP-tala skráð) 12.11.2010 kl. 19:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband