Crimescene

Það hefur ekki mikið drifið á daga mína hérna í London fyrir utan það að passa tvo gutta allan daginn. Þeir eru yfirleitt mjög stilltir, nema í dag þegar Birkir var að leggja mig í einelti með því að gera grín af hikstanum mínum. Birtingur var líka með smá uppreisn en hann kastaði glasinu sínu með smá boosti í, í gólfið með þeim afleiðingum að afgangs boostinn slettist út um víðan völl. Þegar ég ætlaði síðan að skamma hann sagði hann bara ha! Samræðurnar voru nokkrun veginn svona:
Ég: Þetta er bannað Birtingur
Birtingur: ha!
Ég: þetta má ekki
Birtingur: ha!
Ég: ekki segja ha
Birtingur: ha!

Þá gafst ég upp.

Um helgina var ég eitthvað slappur svo ég og dísa höfðum kósýkvöld á laugardeginum, ágætt að fá smá pásu frá þessu villta djammlífi sem við stundum hérna í London. Við pöntuðum pizzu sem tók um það bil einn og hálfan tíma og þegar við loks fengum hana var hún orðin hálf köld. Pizzasendillinn þurfti meira að segja að hringja og spyrja til vegar. Loks þegar hann hafði náð að spotta mig þar sem ég stóð í dyragættinni að svipast um eftir honum, örmagna af hungri sagði hann með þessum líka grimma indverska hreim: I'ts really difficult to find. En þrátt fyrir að vera nánast buguð af hungri sló ég mér bara í lær og hló og saði: Yes, I know.

Ævintýrum kvöldsins var ekki lokið þarna heldur tók á móti mér blátt blikkljós og lögreglubíll þegar ég kom heim. Svæðið hliðina á húsinu mínu hafði verið afgirt og tvær frísklegar lögreglukonur sátu inni í lögreglubíl að spjalla. Í fyrstu hafði ég miklar áhyggjur um afdrif gömlu, heyrnalausu konunnar fyrir neðan okkur. Svo virðist þó sem hún sé í heilu lagi og að átökin hafi verið meira út á götu, allaveganna var blóðpollurinn þar. Eftir miklar vangaveltur hef ég komist að niðurstöðu um hvað hafi átt sér stað og ég ætla að segja að þarna hafi rússneska mafían átt leik í stunguárás. Þess vegna hafi ekki verið nein læti í kringum þetta. Lögreglan hefur síðan ákveðið að hafa hljótt um þetta til að skapa ekki óþarfa hræðslu hjá okkur bretunum.

Stefán kom þarseinustu helgi mér til mikillar ánægju með slatta af bandarískum slúðurblöðum, og Bylgju líka. Núna gerum við okkur betur grein fyrir því hvað People er mikið hágæða efni. Ásamt Stefáni komu nokkrir pakkar líka. Ég fékk þessa hlýju húfu frá ömmu sem á eftir að gera góða hluti í kuldanum og ullarsokka og þrista frá mömmu og pabba. Mamma ákvað að bæta upp fyrir seinasta nammi sem hún sendi en það var Kit Kat sem er selt í flestum indverja sjoppum hérna.

Það vildi svo skemmtilega til að Bylgja og Erik höfðu ákveðið að panta sér ferð til Parísar sömu helgi og Stefán kom, þannig við enduðum með því að leika helgarforeldra. Það gekk vonum framar en ég verð að viðurkenna að seinni nóttina var ég alveg að missa móðinn en Birkir vaknaði 8 sinnum þá nótt. Undir morguninn var ég alveg að gefast upp og langaði helst bara að segja við hann: plís, farðu að sofa. En þar sem ég hef fengið nokkra reynslu í þessum efni sá ég fram á að það væri betra að hugga hann. Það skilaði góðum árangri.

Annars er ég bara laying low, pressan er búin að vera á eftir mér eftir að liðið að hans Stefáns sigraði svona glæsilega í Útsvari um helgina. Maður er svo mikið celeb hérna í London, mig líður alveg eins og footballers wife, kannski ekki alveg það hefur nefnilega enginn haldið fram hjá mér, og ég er heldur ekki að fara að fá nýjan trúlofunarhring af því að gamli sé uppfullur af lygum.

Ég og dísa skruppum líka aðeins í Harrods á sunnudaginn, skrifuðum kveðja til Díönu prinsessu og biðum eftir að einhver ríkur aðili myndi splæsa í föt hana okkur. Við vorum ekkert alltof lengi inní Harrods þar sem meirihlutinn var dýrari en árslaunin okkar, til samans. Fórum frekar á útsölu í Topshop og H&M.

XOXO

LOVE TYRA


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaha Kristín, ég elska bloggin þín!! Þú ert ótrúlega skemmtilegur penni :)

Erna Dís (IP-tala skráð) 25.10.2010 kl. 21:48

2 identicon

Útsölu?!?!?! þú sagðir ekkert um útsölu!!!

Bylgja (IP-tala skráð) 26.10.2010 kl. 09:22

3 identicon

En gaman að lesa !!

Fékk líka þrista frá mömmu.. það var best :)

Gangi þér vel, væri ótrúlega gaman að hitta ykkur, koma til London eða þið jafnvel að koma til Cambridge - yndislegur bær!!

knús - Áslaug

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir (IP-tala skráð) 2.11.2010 kl. 21:00

4 identicon

Elska þrista. Þeir verða líka svo miklu betri þegar maður býr í útlöndum... knússss

ps. sá módelmyndirnar á fb. skvízzískvízzzzzz :O)

Fríða (IP-tala skráð) 4.11.2010 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband