Janus gallinn

Janus gallinn var að gera það gott í dag! Það var nefnilega frekar kalt í gær þegar ég var að fara að sofa og þá sá ég mér ekki fært um annað en að henda mér í Janus gallann og glænýju hnéháu ullarsokkana úr H&M. Þegar ég vaknaði svo var enn kalt svo ég ákvað að dvelja örlítið lengur í janus gallann og henti mér bara í aðra peysu yfir gallann og skellti í mig tebolla. Bretar kynda nefnilega ekki húsin sín á sumrin og það hefur verið bara rosalega milt og gott alveg þangað til í gær, svo alveg eins gott að fara bara eftir siðum Breta. Bylgja gerði heiðarlega tilraun í morgun til að kveikja á hitanum en ennþá er ekkert farið að gerast.... and the clock is ticking.

Það var stórt verkefni sem ég þurfti að takast á við í dag sem Au-pair en það var að vakna klukkan 8. Það gekk bara vonum framar og ég sé fram á að á morgun verði ég komin fram úr klukkan 8. Ég þarf náttúrulega bara aðlögun eins og strákarnir.

Birtingur og Ylfa til okkar klukkan 9 og þá hófst leikgleðin. Birkir var ekkert alltof spenntur yfir þessu öllu að þurfa að deila dótinu sínu en hann þarf bara aðlögun, eins og ég. Þeir voru síðan geðveikt duglegir og sváfu alveg báðir í 2 og hálfan klukkutíma sem var ekki amalegt fyrir mig, því ég fékk minn klukkutíma blund líka. Er virkilega að kunna að meta þessa hádegisblunda. Þeir munu koma sterkir inn í framtíðinni.

Ég fékk geðveikan care pakka í dag frá lang bestasta dreng í heimi, Stefáni. Hann innihélt allt það sem koma mun nammiframleiðslu heimsins í eðlilegt horf. Það var alveg huge bland í poki, nokkrir stórir draumar, blandaður lakkrís og kúlúsúkk. Nú mun ég loksins ná aftur eðlilegri þyngd því ég var kominn með mikinn næringarskort. Pakkinn innihélt einnig tvö Séð og heyrt blöð, sem voru ekki amalegur viðauki handa the Gossip Queen. Síðan var einn minnislykill með í pakkanum. Á minnislyklinum var að finna geðveikar bíómyndir þar á meðal Clueless og ljósmyndir af hinu þessu, m.a. systkinum Stebba, Stefáni, grænu þrumunni og random hlutum, og viti menn það kom tár í augu Londonsfarans. Þetta var eiginlega bara the Ultimate Survivor kit Kristínar Helgu.

Svo síðan til að jafna út nammiát dagsins ætla ég að fara í rætkina með Bylgju eftir kvöldmat....... þ.a.e.s. ef við komumst

E.S. Við fórum í ræktina, labbandi og refsuðum lóðunum grimmt, ásamt því að sýna þessum bretum hvar Davíð keypti ölið.

XOXO
LOVE TYRA

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Uuu hann gleymdi að senda Seríós.... Annars er Stefán snillingur :)

Ellen (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 22:10

2 identicon

Ég fékk sms frá þér sem ég held að hafi átt að fara til Stefáns :D en alltaf gaman að fá sætt sms frá þér ;)

ágústa (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 22:11

3 identicon

HAHA ó ég er svo glöð að finna annan í sömu sporum og ég... þannig er nefninlega mál með vexti að ég tók með rauðu janus ullarnærfötin því ég ætla heldur betur að skottast á skíði í ölpunum hérna í vetur og þá er gott að vera vel klæddur, en þau hafa komið af virkilega góðum notum hérna heima, og ennþá er bara september. Sef eins og engill í þeim ásamt angóru ullarsokkunum á hverri nóttu. Það er nefninlega líka þannig hjá þjóðverjum að þeir eru ekkert að kynda að óþörfu... Núna til dæmis er búinn að vera skítakuldi síðustu þrjá daga en þeir klæða sig þá bara betur. Svo í vetur þegar kuldinn er orðinn óbærilegur eru þeir með svona tímastillingu á hituninni, þá verður bara kyndað milli 5-8 á morgnana og á kvöldin milli 5-10. Það er náttúrulega bara bruðl að vera að hita þegar enginn er heima á daginn.

En allavega gaman að geta deilt janusarævintýrum með einhverjum öðrum. Hvernig eru þín á litinn?

p.s.kærastinn þinn er algjör dúlla, þetta hefur nú kostað skildinginn að senda þessi kíló að mér sýnist að nammi þvert yfir hafið :)

Hugrún (IP-tala skráð) 27.9.2010 kl. 22:15

4 Smámynd: Kristín Helga Bergsveinsdóttir

hahah mín eru svört, en ég held að ég verði að fjárfesta í angóruullarleystum bráðlega eða einhverjum ægilega snotrum en samt sem áður ákaflega hlýjum inniskóm. Því hér kostar kyndingin skyldingin og þá er gott að eiga eitthvað gott til að grípa í Hugrún.

Kristín Helga Bergsveinsdóttir, 27.9.2010 kl. 23:00

5 identicon

Það er æðislegt að lesa þessi blogg þín...þú ert svo mikill rugludallur. Sakna þín rosa mikið og hlakka mega mikið til að koma að heimsækja þig :D P.S Stebbi er aðeins of mikið krútt

Edda Björg (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 07:59

6 identicon

Þú ert snilli! Sakna bellos bloggsins en þetta bætir alveg upp fyrir það. Þú og Hugrún voruð hvort sem er einu sem blogguðuð og haldið þeim sið jú ennþá ;)

En það er alveg á hreinu að ég þarf að fjárfesta í einu setti af Janus föðurlandi fyrir Austurríki!! Greinilega að bjarga miklu :D

 Haltu áfram að blogga sæta ;*

Tinna

Tinna (IP-tala skráð) 30.9.2010 kl. 09:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband