Tónlistartíminn
25.9.2010 | 11:50
Ég er hrædd um að það hljóti að koma samdráttur hjá nammiframleiðendum í heiminum því að nammiát mitt hefur snarlega minnkað. Aðalástæðan er örugglega að nammi úrvalið er ömurlegt og nærliggjandi sjoppur hafa ekkert úrval. Þetta var frekar erfitt fyrstu dagana, fyrst voru það fráhvarfseinkennin, hita og kuldaköstin og allur sá pakki en ég er öll að komast á strik.
Það var frekar æðislegt veður eftir að Ellen og Davíð fóru, bongóblíða og hægt að sóla sig alveg helling. Ég tók auðvitað engan lit frekar en vanalega þrátt fyrir að leggja mig alla fram.
Við sóluðum okkur t.d. alveg hátt í 4 tíma á miðvikudaginn eftir að hafa farið með strákana í tónlistartíma í drop-ininu.
Tónlistartímarnir eru þannig að maður mætir með barnið og allir setjast í hring og syngja saman með hreyfingum og öllu. Birki leyst ekkert á þetta þannig að Bylgja fór bara fram að leika með hann. Ég, Birtingur og Ylfa fórum inn og settumst. Ég var svo heppin að fá sæti hliðina á kennaranum svo að það var mikil pressa á mér að standa mig. Þegar aðeins var liðið á tímann settist Birtingur í fangið á mömmu sinni, þannig að ég sat svolítið ein þarna hliðina á kennaranum. Ég hélt hins vegar áfram að syngja og gera hreyfingar til að valda kennaranum ekki vonbrigðum. Síðan allt í einu stoppar kennarinn að syngja og spyr mig: "Are you with anybody?" Mig hefur sjaldan liðið eins illa og ákvað að draga úr ákafa mínum í söngnum eftir það.
Ég er ekki búin að vera dugleg að fara mikið ein en ég lét reyna á það um daginn og labbaði alla leiðina í Soho, göngutúrinn minn varð þó brátt að búðarápi því þetta voru allt svo ótrúlega skemmtilegar búðir. Ég kom því ekki alveg tómhent heim. Eftir að hafa grandskoðað hverja búðina á fætur annarri var ég orðin svo áttavilt að ég hoppaði niður í næsta tube og fór heim.
Í fyrra dag létum við reyna á það í fyrsta skipti að ég færi ein með strákana út á leikvöll. Þeir voru báðir í beisli svo það var fínt en labbið tók heila eilífð og svo ruglaðist ég á leið og fór mikið lengri leið sem er bara alltof mikið fyrir svona litlar dúllur. Birkir og Birtingur voru bestu vinir alla leiðina svo að ansi oft þurfti ég að stoppa þegar þeir byrjuðu að hlægja saman. Fyrst byrjaði Birkir að gera eitthvað fyndið síðan hlógu þeir heil helling þangað til þeir fóru að knúsa hvorn annan og þá duttu þeir og svona gekk þetta aftur og aftur. Ég gat auðvitað ekki annað en hlegið með þeir því að þeir voru algjörar rúsínur.
Í gær fórum við út á leikvöll hérna alveg rétt fyrir ofan okkur og lentum í alveg úrhelli. Við létum það ekki stoppa okkur og héldum því áfram útiverunni. Á leiðinni heim löbbuðum við að Exmouth market, sem er ótrúlega krúttaraleg gata örlítið frá okkur. Við stoppuðum á kaffihúsi þar og fengum kakó og gulrótarköku áður en við röltum heim. Birtingur tók í fyrsta skipti hádegisblundinn sinn hjá okkur og gekk það bara vel, hann var að vísu ótrúlega spenntur yfir öllu dótinu hans Birkis svo hann vildi ekki alveg fara að sofa strax en Birkir var eins og klukka og fór inn í hebergi þegar klukkan var 5 mínútur í 12 og sagði góða nótt.
Pabbi hennar Bylgju og bróðir eru í heimsókn í London, svo að Bylgja fór með þá í skoðunarferð um hverfið og tók Birki með. Ég og Birtingur vorum því ein eftir heima að leika. Ég setti Dýrin í Hálsaskógi í gang fyrir Birting en skemmti mér sjálf konunglega yfir honum og söng með eins og enginn væri morgundagurinn.
XOXO
LOVE TYRA
Athugasemdir
Ég dó úr hlátri þegar ég las "Are you with anybody" hahahaha snillingur ;)
Gott að heyra að allt gangi vel hjá ykkur, knúsaðu litla kall frá mér :)
Kv. Erna Dís frænka
Erna Dís (IP-tala skráð) 26.9.2010 kl. 16:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.